Alþingiskosningar - kjörstaðir í Garðabæ
Kosningar til alþingis verða haldnar laugardaginn 25. september nk. Kjörfundur stendur frá kl. 09:00 til 22:00 í Garðabæ.
Upplýsingar um kosningarnar eru að finna á kosningavef Stjórnarráðsins, kosning.is
Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis, er fram eiga að fara laugardaginn 25. september 2021, verður í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut (beygt inn af Bæjarbraut, á milli Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ) og í hátíðarsal Álftanesskóla við Breiðumýri.