Fjölskyldudagur UMFÁ kl. 14-17
Í tilefni af forvarnaviku verður UMFÁ með fjölskyldudag í íþróttahúsinu á Álftanesi laugardaginn 6. október kl. 14-17.
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 3.-10. október. Þema vikunnar er heilsueflandi samvera og slagorð hennar er „Verum saman – höfum gaman“. Í vikunni verður boðið upp á fræðslu og viðburði þessu tengt fyrir foreldra og börn í Garðabæ.
Í tilefni af forvarnaviku verður UMFÁ með fjölskyldudag í íþróttahúsinu á Álftanesi laugardaginn 6. október kl. 14-17. Börnum og foreldrum er boðið að koma í íþrótttasalinn og leika sér, t.d. spila badminton, bandý, körfubolta og fleira. Þjálfarar félagsins verða á staðnum. Hollar veitingar í boði fyrir þátttakendur.