• 31.12.2021, 21:15, Garðabær

Flugeldasýning hjálparsveita skáta

  • Flugeldasýning hjálparsveita skáta á gamlárskvöld kl. 21:15

Flugeldasýning hjálparsveitar skáta í Garðabæ verður haldin á gamlárskvöld kl. 21:15 við Arnarnesvoginn og ætti að sjást víða að þannig að íbúar geti notið hennar úr fjarlægð heiman frá eða útivið á göngustígum án þess að safnast saman.

Eins og fram hefur komið verða engar brennur á höfuðborgarsvæðinu í ár til að draga úr hættu á hópamyndun. 

Fólk sem hyggst njóta flugeldasýningarinnar utandyra er beðið um að virða samkomutakmarkanir, s.s. fjöldatakmarkanir og fjarlægð á milli.