Foreldraspjall klukkan 10 í Bókasafni Garðabæjar - skyndihjálparnámskeið
Skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins verður fyrir foreldra ungra barna í Bókasafni Garðabæjar kl. 10 þann 15. nóvember.
Skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins verður fyrir foreldra ungra barna í Bókasafni Garðabæjar kl. 10 þann 15. nóvember. Foreldrar og börn þeirra, verðandi foreldrar, afar og ömmur og aðrir áhugasamir velkomnir. Heitt á könnunni. Foreldraspjallið eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra. Hentar þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi. Markmiðið með foreldraklúbbnum er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Garðabæ. Hafa vettvang til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar. Kaffi, te og spjall, inn á milli verður boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barnauppeldi. Ekki síst er mikið úrval til af bókum um börn og uppeldi. Foreldrar, verðandi foreldrar, afar, ömmur og börn eru velkomin.
Viðburðurinn á Facebook.