• 23.10.2018, 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Gísli Marteinn fjallar um Tinna kl. 18:00

Þriðjudagskvöldið 23. október klukkan 18.00 kemur Gísli Marteinn Baldursson og fjallar um Tinna bækurnar í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi.

Þriðjudagskvöldið 23. október klukkan 18.00 kemur Gísli Marteinn Baldursson og fjallar um Tinna bækurnar í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi. Tinnabækurnar hafa verið feikivinsælar á Íslandi frá því þær byrjuðu að koma út á íslensku árið 1971. 

Nýlega flutti Gísli Marteinn Baldursson útvarpsþætti á Rás 1 sem báru heitið Ævintýri Tinna, þar sem þessi áhugaverði bókaflokkur er skoðaður ofan í kjölinn og ýmsum hliðum hans velt upp sem ekki höfðu verið mikið í umræðunni áður.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Viðburðurinn á Facebook.