Hátíðartónleikar í Kirkjuhvoli 17. júní kl. 20:00
Hljómsveitin Salon Islandus kemur fram á hátíðartónleikum í Garðabæ 17. júní nk. Tónleikarnir eru haldnir í Kirkjuhvoli , safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ og hefjast kl. 20. Einsöngvari með hljómsveitinni í ár eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran.
Hljómsveitin Salon Islandus kemur fram á hátíðartónleikum í Garðabæ 17. júní nk. Tónleikarnir eru haldnir í Kirkjuhvoli , safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ og hefjast kl. 20. Einsöngvari með hljómsveitinni í ár eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran.
Á efnisskránni eru vinsæl Vínarlög, aríur, dúettar, valsar og önnur létt tónlist. Að sjálfsögðu verður sólónúmer konsertmeistarans á sínum stað en hann er í þetta sinn Nicola Lolli fiðluleikari og konsertmeistari Sinfoníuhljómsveitar Íslands.
Hallvegi Rúnarsdóttir hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim, hún hefur sungið sópranhlutverkið í mörgum helstu stórverkum tónbókmenntanna og hefur sungið margoft með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk fjölda annarra hljómsveita bæði hér á landi og erlendis.
Hallveig hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 fyrir hlutverk sitt sem Micaëla í Carmen hjá Íslensku óperunni. Hún var tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem Söngvari ársins árið 2014 fyrir sama hlutverk. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna annað árið í röð, fyrir árið 2014.
Hljómsveitin Salon Islandus kemur fram á tónleikum víða um land og hefur leikið reglulega á hátíðartónleikum í Garðabæ á 17. júní undanfarin ár. Forverar þessarar átta manna hljómsveitar eru tríó og síðar kvartett sem allt frá níunda áratug síðustu aldar héldu reglulega Vínar- og aðra skemmtitónleika og hafa margir frábærir söngvarar komið fram með hljómsveitunum í gegnum tíðina.
Með hljómsveitinni þetta kvöld leika Nicola Lolli , konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fiðlu og bandaríski fiðluleikarinn Laura Liu, Hafdís Vigfúsdóttir leikur á flautu, Sigurður I. Snorrason leikurá klarinett, Anna Guðný Guðmundsdóttir á píanó og Pétur Grétarsson á slagverk.
Allir eru velkomnir í Kirkjuhvol, safnaðarheimili Vídalínskirkju, að njóta góðrar tónlistar á þessum hátíðardegi á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis í boði Garðabæjar. Hátíðartónleikarnir eru hluti af 17. júní dagskrá í Garðabæ.