Haustlitir - ljóðalestur, tónlist og myndlist
Haustlitir - ljóðalestur, tónlist og myndlist - menningarhátíð á vegum Norræna félagsins sunnudaginn 7. október kl. 20:00.
Dagana 4. 5. og 7. október verður haldin menningarhátíð á vegum Norrænu félaganna í Reykjavík og Garðabæ. Íslenskir og erlendir listamenn koma fram á hátíðinni.
Þátttakendur eru:
Karsten Bjarnholt — Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Þór Stefánsson — Lennox Raphael
Birgir Svan Símonarson — Hrafn Harðarson
Anna Karin Júlíussen — Jesper Dalmose
Sigurður Örlygsson — Anna S. Björnsdóttir
Sunnudaginn 7. október kl. 20:00 verður hátíðin í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Ljóðalestur, tónlist og video- og myndlistarsýning.
Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir!
Dagskráin í Garðabæ er haldin á vegum Norræna félagsins í Garðabæ í samstarfi við menningar- og safnanefnd Garðabæjar.
Anna S. Björnsdóttir kennari og ljóðskáld hefur umsjón með hátíðinni.
Norræna félagið í Garðabæ á facebook
Auglýsing - Haustlitir - plakat
4. október, opnun hátíðar í Norræna félaginu við Óðinstorg kl. 17 Ljóðalestur og tónlist.
5. október, Gunnarshús Dyngjuvegi 8. Reykjavík kl. 20 Ljóðalestur, Heartland - video og tónlist.