• 27.10.2018, 11:00 - 14:00, Bókasafn Garðabæjar

Hrekkjavökusmiðja kl. 11-14

Hrekkjavökusmiðja verður haldin laugardaginn 27. október kl. 11-14 í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7.

Hrekkjavökusmiðja verður haldin laugardaginn 27. október kl. 11-14 í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7. Þar gefst þátttakendum kostur á að skera út grasker og búa til eigin graskerslukt. Það þarf að taka með sér grasker og beittan hníf. Einnig er nauðsynlegt að hafa góða skeið til að skafa innan úr og ílát undir graskersmaukið. 

Gott er að tilkynna þátttöku á netfangið bokasafn@gardabaer.is eða í síma 591 4550 til að tryggja sér pláss. Vonumst til að sjá sem flesta.

Viðburðurinn á Facebook.