• 24.6.2021, 19:30 - 22:00, Meðfram strandstígnum í Sjálandshverfi

Jónsmessugleði Grósku - myndlistarsýning með listviðburðum

  • Jónsmessugleði Grósku 24. júní 2021

Jónsmessugleði Grósku 2021 - Myndlistarsýning með listviðburðum við Strandstíginn í Sjálandshverfi, Garðabæ.  Fimmtudaginn 24. júni kl. 19:30-22. Gefum - Gleðjum - Njótum

Jónsmessugleði Grósku verður haldin í tólfta sinn fimmtudaginn 24. júní kl. 19.30-22 með þemanu „leiktjöld litanna“. Fjölbreytileg og sérlega litrík listaverk verða til sýnis við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar og að þessu sinni stendur sjálf myndlistarsýningin yfir fram á sunnudaginn 27. júní.
Auk sjálfrar sýningarinnar verða alls konar listviðburðir á dagskrá: Upplestur, tónlist og söngur, dans, leiklist og fleira. Að venju lýkur Jónsmessugleði Grósku svo með óvæntum gjörningi í lok kvöldsins.

Strönd með fallegri sjávarsýn myndar hrífandi vettvang fyrir Jónsmessugleði og einkunnarorðin gefum, gleðjum og njótum slá tóninn fyrir kraftmikið glaðvært andrúmsloft kvöldsins. Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, stendur fyrir Jónsmessugleði í samstarfi við Garðabæ en auk félaga úr Grósku taka gestalistamenn frá Vestmannaeyjum, Rangárþingi, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík þátt í sýningunni. Viðburðaþátttakendur koma einnig hvaðanæva að.  Hópur ungmenna í skapandi sumarstörfum í Garðabæ taka einnig þátt í Jónsmessugleðinni. Jónsmessugleði er fyrir fólk á öllum aldri og ungir sem aldnir láta ljós sitt skína.

Gróska sem var stofnuð í framhaldi af fyrstu Jónsmessugleði sem haldin var fyrir tólf árum hefur fest sig í sessi í menningarlífi Garðabæjar með árvissum og einstökum viðburðum og hlaut viðurkenningu Garðabæjar árið 2019 fyrir merkt framlag til menningar og lista. Þegar faraldurinn geisaði árið 2020 þurfti að aflýsa Jónsmessugleði en nú er Gróska aftur mætt til leiks.

Verið velkomin á Jónsmessugleði Grósku, gestir eru beðnir um að virða fjarlægðarmörk og að hópast ekki saman um of heldur njóta þess að ganga um strandstíginn. 
Garðbæingar jafnt sem aðrir, og fólk er hvatt til að klæðast litríkum fötum og höttum og gera einkunnarorð Grósku að sínum með því að gefa, gleðja og njóta meðan það þræðir Strandstíginn milli „leiktjalda litanna“.

Viðburður á fésbókarsíðu Grósku. 
https://www.facebook.com/groska210/
https://www.instagram.com/groskamyndlist/