• 19.9.2021, 13:00 - 15:00, Hönnunarsafn Íslands

Kristín Þorkelsdóttir tekur á móti gestum

Kristín Þorkelsdóttir verður á Hönnunarsafni Íslands sunnudaginn frá kl. 13-15 og tekur á móti gestum.

Kristín Þorkelsdóttir verður á safninu sunnudaginn frá kl. 13-15 og tekur á móti gestum.
Að baki hvers þjóðþekkts verks Kristínar liggja ógrynni af skissum, tilraunum og pælingum, sem ekki hefur verið safnað saman til sýningar fyrr en nú. Á sýningunni má því sjá kunnugleg og áður óséð verk, sem samanlagt umbreyttu smátt og smátt ungri myndlistarkonu í einn helsta brautryðjanda landsins á sviði grafískrar hönnunar.
Sýning á verkum Kristínar stendur yfir í Hönnunarsafni Íslands til 30. desember.