• 19.1.2019, 13:00, Hönnunarsafn Íslands

Leiðsögn um Safnið á röngunni kl. 13

  • Einar Þorsteinn

Laugardaginn 19. janúar kl. 13 mun Guðmundur Oddur Magnússon sjá um leiðsögn og spjall á sýningunni Safnið á röngunni með Einari Þorsteini. Goddur tók fjölda viðtala við Einar á meðan hann var á lífi og fáir sem þekkja líf hans og störf betur.

Sýningin er skráningarverkefni sem staðið hefur yfir í Hönnunarsafninu undanfarna mánuði og fer nú brátt að ljúka.

Einar Þorsteinn var brautryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni, samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980. Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu.

Viðburðurinn á Facebook.