• 12.1.2019, 11:30 - 12:30, Bókasafn Garðabæjar

Lesið fyrir hund kl. 11:30

Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi býður börnum að heimsækja safnið og lesa fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á upplestur kl. 11:30 þann 12. janúar.

Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi býður börnum að heimsækja safnið og lesa fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á upplestur kl. 11:30 þann 12. janúar.Hægt er að koma með eigin bók eða velja sér bók í barnadeild safnsins. Öll grunnskólabörn og forráðamenn velkomnir en takmarkaður fjöldi kemst að. 

Nauðsynlegt er að skrá sig með fyrirvara. Skráning er í netfangið bokasafn@gardabaer.is, í afgreiðslu eða í síma 591 4550. Viðburðurinn á facebook.