Leyndarmál - haustsýning Grósku
Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, opnar sína árlegu haustsýningu í sýningarsal Grósku, Garðatorgi 1, (2. hæð), kl. 20:00 – 22:30 fimmtudagskvöldið 8. nóvember. Þema sýningarinnar er ,,Leyndarmál“.
Sama kvöld verður Tónlistarveisla í skammdeginu þar sem hljómsveitin Valdimar stígur á svið á Garðatorgi kl. 21.
• Sýning Grósku verður áfram opin, 9.-11. nóv., kl. 12-18.