Listamaður mánaðarins í Bókasafni Garðabæjar
Móttaka listamanns mánaðarins - Ingunn Jensdóttir
Ingunn Jensdóttir listamaður mánaðarins í Bókasafni Garðabæjar tekur á móti gestum og gangandi fimmtudaginn 23. ágúst á milli klukkan 17 og 18 í safninu á Garðatorgi.
Allir velkomnir. Heitt á könnunni.
Listamaður mánaðarins er samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar og myndlistarfélagsins Grósku í Garðabæ.