• 4.10.2018, 16:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Listamaður mánaðarins í bókasafninu - Lilja G. Hallgrímsdóttir

Lilja Guðrún Hallgrímsdóttir er listamaður mánaðarins í Bókasafni Garðabæjar í október. 

Lilja Guðrún Hallgrímsdóttir er listamaður mánaðarins í Bókasafni Garðabæjar í október.  Listamaður mánaðarins er samstarfsverkefni bókasafnsins og myndlistarfélagsins Grósku í Garðabæ.  Verk eftir Lilju verða til sýnis í safninu á Garðatorgi í október. Sýningin opnar fimmtudaginn 4. október milli kl. 16-18. Lilja Guðrún málar með olíulitum á striga, margs konar stærðir og áherslur. Litasamsetning og form ráða oft för hvort sem landlag eða abstraktmyndir eiga í hlut, og er pensillinn látinn svolítið ráða. 
Velkomin á sýninguna í bókasafninu.
Vefur Bókasafns Garðabæjar  Bókasafn Garðabæjar á facebook