• 28.11.2020, 16:00, Fésbókarsíða Garðabæjar

Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi - frumsýning jólamyndbands

  • Ljósin tendruð á jólatrénu - gerð jólamyndbands

Jólaþáttur verður frumsýndur á fésbókarsíðu Garðabæjar laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00

Í upphafi aðventu er hefð fyrir því að tendra á ljósum jólatrésins á Garðatorgi og bjóða fjölskyldum upp á skemmtidagskrá. Vegna gildandi samkomutakmarkana verður brugðið út af vananum í ár.  Sérstakur jólaþáttur verður frumsýndur á fésbókarsíðu Garðabæjar laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00 á þeim tíma sem venjan er að tendra ljósin á trénu á Garðatorgi.  Í jólaþættinum verða ljósin tendruð á trénu, jólasveinar koma þar við sögu, boðið verður upp á föndursmiðjur á Bókasafni Garðabæjar og í Hönnunarsafninu. Tónlistaratriði með þeim Hallveigu Rúnarsdóttur og Jóni Svavari Jósepssyni á sviðinu í sal Tónlistarskóla Garðabæjar er hluti af jólaþættinum og jólasveinar rata að lokum í burstabæinn Krók í leit sinni að Ketkróki. 

Fylgist með rafrænum menningarviðburðum Garðabæjar á menningarrás á vimeo.com/menningigardabae , sjá líka upplýsingar hér á vefnum
Rafrænum menningarviðburðum er einnig streymt á fésbókarsíðu Garðabæjar.