Opið hús í Króki á Garðaholti
Bærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar (júní, júlí, ágúst) frá kl. 13-17.
Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið nýtt sem tímabundin vinnuaðstaða fyrir listamenn.
Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu) við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar. Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.