Opnar vinnustofur listamanna Grósku
Listamenn Grósku verða með vinnustofur sínar opnar fyrir gesti og gangandi miðvikudagskvöldið 21. nóvember kl. 17-22.
Listamenn Grósku verða með vinnustofur sínar opnar fyrir gesti og gangandi miðvikudagskvöldið 21. nóvember kl. 17-22. Jafnframt verða verk eftir Gróskufélaga til sýnis og sölu í sýningarsal Grósku. Þarna gefst frábært tækifæri til að spjalla við listamennina sjálfa og eignast listaverk stór og smá. Vinnustofurnar eru bæði á jarðhæð og efri hæð hjá Gróskusalnum við Garðatorg 1 í Garðabæ.
Gróska eru samtök myndalistarmanna í Garðabæ sem standa árlega fyrir fjölmörgum sýningum og viðburðum. Starfsemi Grósku hefur skapað mikilvægan vettvang fyrir skapandi samneyti myndlistarmanna og orðið mörgum hvatning til að koma fram með duldar perlur í formi listaverka.
Upplýsinga- og sölusíða félaga í Grósku.
Gróska á facebook