• 6.10.2018 - 7.10.2018, 10:00 - 16:00, Íþróttamiðstöðin Ásgarður

Ratleikur fyrir fjölskyldur alla helgina frá Ásgarði

Ratleikur fyrir fjölskyldur verður í gangi alla helgina. Hægt að hefja leik á milli kl. 10 -16 laugardag og sunnudag.

Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 3.-10. október.  Þema vikunnar er heilsueflandi samvera og slagorð hennar er „Verum saman – höfum gaman“. Í vikunni verður boðið upp á fræðslu og viðburði þessu tengt fyrir foreldra og börn í Garðabæ. 

Í tilefni forvarnaviku verður ratleikur fyrir fjölskyldur í gangi alla helgina. Leikurinn er ræstur í íþróttamiðstöðinni Ásgarði en hægt er hefja leikinn á milli kl. 10-16 laugardag og sunnudag. Hægt verður að fá úrvinnslublöð fyrir ratleikinn í afgreiðslu Ásgarðs. 

Nánari upplýsingar fást í afgreiðslu Ásgarðs.