Skálum fyrir Einari Þorsteini Ásgeirssyni
OPNUN – Skálum fyrir Einari Þorsteini Ásgeirssyni, laugardaginn 2. júní kl. 15.00
OPNUN – Skálum fyrir Einari Þorsteini Ásgeirssyni, laugardaginn 2. júní kl. 15.00
„Ég nota módel til að gera tilraunir, ég geri tilraunir til að skilja“
Árið 2014 færði arkitektinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942–2015) Hönnunarsafni Íslands allt innvols vinnustofu sinnar að gjöf. Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, samtals um 1500 muni. Einar Þorsteinn var brautryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni , samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980. Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu. Undanfarnar vikur hefur starfsfólk Hönnunarsafns Íslands ásamt ýmsum góðum gestum unnið við að skrásetja þessa muni í sýningarsal safnsins.