Útivist fyrir fjölskyldur kl. 11-14
Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall verða með útivist fyrir fjölskyldur, sunnudaginn 7. október kl. 11-14.
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 3.-10. október 2018. Þema vikunnar er heilsueflandi samvera og slagorð hennar er „Verum saman – höfum gaman“. Í vikunni verður boðið upp á fræðslu og viðburði þessu tengt fyrir foreldra og börn í Garðabæ.
Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall verða með útivist fyrir fjölskyldur, sunnudaginn 7. október kl. 11-14. Farið verður í hellaskoðun og eldfjallaleiðangur í Búrfellsgjá og gengið upp á Búrfell sem er afar fagur eldfjallagígur. Mæting við Vífilsstaðaspítala en þaðan verður ekið í halarófu inn í Heiðmörk. Munið eftir nestinu!