WAPP - Gönguleiðir í leiðsagnarappi

Garðabær og Wapp - Walking app hafa samstarf um birtingu göngu-, hjóla- og hlaupaleiða í Garðabæ í leiðsagnarappinu Wappinu. 

Leiðir í Garðabæ

Fimm gönguleiðir í Garðabæ eru í wappinu.

  • Vífilsstaðavatn og Gunnhildur
  • Fógetastígur í Gálgahrauni
  • Búrfellsgjá
  • Bessastaðanes
  • Hraunstígur Garðabæ

Einnig eru í wappinu fjórar hlaupaleiðir í Garðabæ, þar af tvær á Álftanesi sem eru frá fimm og upp í 10 kílómetra langar og tvær hjólaleiðir 15 og 16 km langar, sú lengri á Álftanesi.

Í boði Garðabæjar

Athugið allar leiðirnar í Garðabæ eru í boði Garðabæjar. Smellt er á "kort" þegar leiðin hefur verið opnuð og á "já" við spurningunni "Viltu kaupa þessa ferð?" Leiðin kemur þá upp endurgjaldslaust.

Leiðirnar eru með kortum, gps hnitum, ljósmyndum og upplýsingum á íslensku og ensku. 

Vonast er til að þetta samstarf auðveldi íbúum Garðabæjar sem og öðrum að nálgast upplýsingar um áhugaverðar gönguleiðir, sögulegan fróðleik um menningarminjar og útivistarmöguleika í landi Garðabæjar og hvetji til aukinnar hreyfingar og útiveru. 

Söguleiðir og hreyfileiðir

Leiðirnar í wappinu eru tvenns konar, þ.e. söguleiðir og hreyfileiðir.  

Söguleiðir eru leiðir með leiðsögn þar sem upplýsingapunktar á réttum stöðum veita upplýsingar í texta og mynd. Upplýsingarnar snerta það sem ástæða þykir til að segja frá í náttúru og umhverfi, úr þjóðsögum eða af lífi fólks á svæðinu fyrr og nú.

Hreyfileiðirnar innihalda minniháttar upplýsingar um umhverfi en þó er fjallað um svæðið í inngangi og þess getið hvort eitthvað sérstakt þurfi að hafa í huga á leiðinni, t.d geta aðstæður verið mismunandi eftir árstíðum. Hreyfileiðarnar hefjast allar við íþróttamiðstöðvarnar á Álftanesi og í Ásgarði.

Fyrstu söguleiðirnar opnaðar 9. júní 2016

Fimmtudaginn 9. júní 2016 bauð Garðabær til sögugöngu um Fógetastíg í Gálgahrauni í tilefni af 40 ára afmæli bæjarins. Við það tækifæri var leið um Gálgahraun opnuð í Wappinu auk þriggja annarra söguleiða um Búrfellsgjá, Vífilsstaðavatn og Gunnhildi og Bessastaðanes. Til viðbótar hafa söguleiðir umhverfis Bessastaðatjörn og um Hraunstíg verið gefnar út..

Um Wappið

Wappið er stafrænn gagnagrunnur leiðarlýsinga á Íslandi sem er miðlað í gegnum app fyrir Iphone og Android snjallsíma. Leiðarlýsingarnar eru um allt land, með GPS ferlum og ljósmyndum og er miðlað á ensku og íslensku til notenda. Leiðarlýsingum er hlaðið á símann og þær notaðar án þess að vera í gagnasambandi. Stokkur ehf. forritar Wappið og Samsýn ehf. sér um kortagrunninn fyrir Ísland.

Á forsíðu, http://www.wapp.is/ eru hlekkir beint á App Store og Play Store til að sækja Wappið.