Fjárhagsáætlun 2021- ábendingar íbúa
Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2021-2024. Allar ábendingar verða teknar til skoðunar á milli umræðna í bæjarstjórn. Hægt var að senda inn ábendingar og tillögur til 12. nóvember 2020.
Samráðsgátt fyrir íbúa um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021 - smellið á hlekkinn fyrir neðan.
ÁBENDINGAR ÍBÚA UM FJÁRHAGSÁÆTLUN - SAMRÁÐSGÁTT
- Við innskráningu má sjá ferninga fyrir sjö mismunandi yfirflokka, og má setja þar undir ábendingar og tillögur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar. Áttundi flokkurinn er merktur „Annað“ og þar má leggja fram tillögur sem ekki eiga heima undir yfirflokkunum sjö.
- Einnig má ræða og færa rök fyrir og gegn ábendingum sem búið er að setja inn.
Ábendingar geta t.d. snúið að:
- Tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar
- Nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna
- Verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins
Þátttaka í samráðsgáttinni er valkvæð og vinnsla þeirra upplýsinga sem safnast byggir á samþykki þátttakenda sem gefið er við innskráningu.
Einnig er hægt að senda inn ábendingar um fjárhagsáætlun í gegnum skráningarform á vef Garðabæjar: Innsendingarform á vef Garðabæjar vegna ábendinga má finna hér.
Um fjárhagsáætlun Garðabæjar - vinnuferli
Fjárhagsáætlun Garðabæjar verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 19. nóvember 2020 (var upphaflega áætlað 5. nóvember). Síðari umræða um fjárhagsáætlun er áætluð á fundi bæjarstjórnar fimmtudaginn 3. desember 2020.