Bæjarstjórn

Bæjarstjórn Garðabæjar 2022-2026 er skipuð 11 fulltrúum.

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Hún fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem hún hefur ekki falið hana öðrum. Á meðal annarra verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

Fundir bæjarstjórnar Garðabæjar eru fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast kl. 17.
Fundir bæjarstjórnar eru haldnir í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7. 

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir.

Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Garðabæjar daginn eftir fund. 

Upptökur (myndupptökur og eldri hljóðupptökur) af fundum bæjarstjórnar má sjá hér. 

Næsti fundur bæjarstjórnar

Fundurinn verður í beinu streymi af vef Garðabæjar, sjá útsendingu og fundarboð hér.  

Fulltrúar í bæjarstjórn

Forseti bæjarstjórnar 2023-2024 er Sigríður Hulda Jónsdóttir (D)
Varaforsetar 2023-2024 eru Guðfinnur Sigurvinsson (D) og Ingvar Arnarson (G)

Í kosningum vorið 2022 voru eftirtaldir fulltrúar kjörnir í bæjarstjórn: