Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar |
10.10.2018 kl. 17:00 kom skólanefnd grunnskóla Garðabæjar saman til fundar í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg. |
|
Fundinn sátu: Sigríður Hulda Jónsdóttir aðalmaður, Jóhann Steinar Ingimundarson aðalmaður, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir aðalmaður, Sturla D Þorsteinsson aðalmaður, Sara Dögg Svanhildardóttir aðalmaður, Edda Björg Sigurðardóttir fulltrúi skólastjóra, Kristín Sigurðardóttir verkefnastjóri, Katrín Friðriksdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, Hilmar Þór Sigurjónsson fulltrúi kennara, Íris Kristina Óttarsdóttir fulltrúi foreldra. |
|
Fundargerð ritaði: Kristín Sigurðardóttir verkefnastjóri á skóladeild. |
|
Við upphaf fundar bar formaður upp breytingatillögu á dagskrá og óskaði eftir að bæta inn nýjum dagskrárlið við lok fundar. Sá liður varðar mál sem vísað var til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla á fundi bæjarráðs þann 9. október sl. Málið varðar bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum. Fyrir liggja fylgigögn; umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og tillaga Garðabæjarlistans sem lögð var fram á ofangreindum bæjarráðsfundi. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 1809192 - Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 2. Grundir |
Lögð fram ósk frá skipulagsnefnd Garðabæjar um umsögn skólanefndar um málið. Skólanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi gögn. |
|
|
|
2. 1809281 - Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
3. 1805397 - Forvarnarvika í Garðabæ 2018 |
Dagskrá forvarnarviku, sem lauk í dag, var fjölbreytt og stóð fjölskyldum í Garðabæ margt áhugavert til boða. Skólanefnd óskar eftir því við skóladeild að taka saman minnisblað um hvernig hefur til tekist, um hvaða kostnað er að ræða og fleiri upplýsingar sem geta nýst við skipulag og markmiðasetningu næstu forvarnarviku. |
|
|
|
4. 1810106 - Þróunarsjóður grunnskóla - yfirlit |
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir styrki úr þróunarsjóði grunnskóla sl. 4 ár. Í heild hefur verið úthlutað 100 milljónum króna til 106 verkefna. Verkefnin eru ólík en bera metnaðarfullu skólastarfi í Garðabæ vitni. |
|
|
|
5. 1808346 - Menntadagur 26. október 2018 |
Undirbúningur stendur nú sem hæst vegna Menntadags leik- og grunnskóla þann 26. október nk. Reiknað er með um 400 starfsmönnum á kynningar á um 40 þróunarverkefnum skólanna sem hlutu styrki á sl. skólaári. |
|
|
|
6. 1810102 - Nýir starfsmenn skóladeildar |
Þrír nýir starfsmenn hófu störf á skóladeild í haust í stað þeirra sem látið hafa af störfum á árinu, 2 sálfræðingar og 1 talmeinafræðingur. |
|
|
|
7. 1810017 - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál. |
Lagt fram til umfjöllunar. Málið rætt og ýmis sjónarmið komu fram. Ljóst er að tvöfalt lögheimili barna er ekki í samræmi við núgildandi lög sveitarfélaga. Vinna þarf að því að finna leiðir í reiknireglum sveitarfélaga til að koma á móts við þetta málefni, þó sé alltaf haft að leiðarljósi að tryggja hagsmuni barnsins sem best. Fram kom að málið hefur nýverið verið rætt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. var ákveðið að taka málið upp við dómsmálaráðherra og óska eftir áliti nýs umboðsmanns barna vegna málsins. Skólanefnd óskar eftir því við skóladeild að athuga hvort hægt sé að fá fagaðila til fundar til frekari umfjöllunar.
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00. |