1. 1804130 - Hnoðraholt og Vetrarmýri, dsk br v. fjölnota íþróttahúss |
Sigurður Einarsson arktitekt kynnti tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar. Um er að ræða lítilega breytta tillögu frá þeirri tillögu sem vísað var til auglýsingar sl vor. Eftir samráðsfundi með Skipulagsstofnun var ljóst að fyrri tillaga hefði kallað á aðalskipulagsbreytingu á þessu stigi. Því er ný tillaga lögð fram sem telst í samræmi við aðalskipulag. Byggingarreitur fjölnota íþróttahúss færist til norðurs að Hnoðraholti og auk þess er ekki gert ráð fyrir byggingarreitum fyrir aðliggjandi íþróttahúsum í framlagðri breytingartillögu en gert er ráð fyrir að þeir verði skilgreindir í þeim rammahluta aðalskipulags sem nú er unnið að. Sigurður gerði ennfremur grein fyrir þeim hugmyndum sem unnið er að varðandi breytingum á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags og nær til Hnoðraholts, Vetrarmýrar og Vífilsstaða. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. |
|
|
|
2. 1709351 - Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag |
Þórhallur Sigðurðsson hja AS-arktiektum kynnti tillögu að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi. Deiliskipulagið skiptist í 5 deiliskipulagsáætlanir; Breiðamýri, Krókur, Helguvík, Kumlamýri og Skógtjörn. Fram kom að breytingar hafa verið gerðar á tillögunni í kjölfar ábendinga sem bárust frá almenningi í forkynnngu. Lilja G.Karlsdóttir samgönguverkfræðingur gerði grein fyrir greiningu tillögunnar með tilliti til umferðar-og öryggis. Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá Tækni-og umhverfissviði. |
|
|
|
3. 1705302 - Beiðni um upptöku máls - Aðkoma að Tjarnarlandi Álftanesi |
Lögð fram beiðni eigenda Tjarnarlands um breytingar á aðkomu að eibýlishúsinu. Beiðninni er vísað til vinnslu við gerð deiliskipulagsins Skógtjarnar sem er hluti af heildarskipulagi Miðsvæðis á Arnarnesi. |
|
|
|
4. 1802322 - Reiðskemma Sóta |
Lögð fram tillaga að reiðskemmu Sóta að lokinni grenndarkynningu. Tvær athugasemdir hafa borist. Tillögunni vísað til skoðunar hjá Tækni-og umhverfissviði. |
|
|
|
5. 1804300 - Álftanes sjóvarnir |
Lagðar fram tillögur Vegagerðarinnar að sjóvörnum á Álftanesi, annarsvegar á Hliðsnesi og hinsvegar hjá Akrakoti á Norðurnesi. Fjörur á Álftanesi eru á Náttúruminjaskrá. Skipulagsnefnd vísar tillögunum til umsagnar Umhverfisstofnunar. |
|
|
|
6. 1712067 - Breiðholt Garðahverfi, fyrirspurn um dsk breytingu |
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis þar sem gert er ráð fyrir því að heimilaðir verði breyttar gerðir þeirra íbúðarhúsa sem gert er ráð fyrir á Breiðholtstorfunni umfram núverandi hús. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um tillöguna. Þar kemur m.a. fram að sérstaða Breiðholts umfram aðrar bæjartorfur í Garðahverfi er nokkur. Umsögn Minjastofnunar liggur einnig fyrir en svæðið hefur fengið viðurkenningu sem verndarsvæði í byggð. Skipulagsnefnd telur að ákvæði deiliskipulagsins eigi að gilda jafnt fyrir allar bæjartorfur í Garðahverfi og þannig verði best tryggt að markmiðum deiliskipulags Garðahverfis verði náð. Tillögunni hafnað.
Baldur Ó.Svavarsson fulltrúi G-listans Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd lagði fram eftirfarandi bókun vegna liða 6, 7 og 8 í fundargerð: "Nú er það að gerast sem undirritaður óttaðist, og varaði við þegar gildandi skipulaga fyrir Garðahverfi var samþykkt að vikið yrði frá skilmálum og áherslum skipulagsins. Það hefur þegar gerst með samþykkt um stækkun kirkjugarðins að Garðavegi og nú liggja fyrir fjöldi beiðna um nýjar lóðir, nýja byggingareiti og stærri hús sbr. lið 6-Um Breiðholt, lið 7- Um Höll og lið 8 -Um Nýjabæ 2. Með sama framhaldi stendur ekki steinn yfir steini yfir þessari svokölluðu "varðveislu byggðamynsturs 20. aldar" sem ku vera markmið gildandi deiliskipulags. Nær verði því að kalla skipulagið "varðveislu skipulagsklúðurs 21. aldar", ef svo framheldur sem horfir. Fulltrúi Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd ítrekar því enn fyrri bókanir á umliðnum tveimur tímabilum (8 ár) dæsir og mótmælir enn þeim áherslum og vinnubrögðum sem lögð eru til grundvallar við gerð skipulags fyrir s.k. Garðahverfi á Gaðaholti. Ekki þarf að fjölyrða um sögu og menningu á Garðaholti. Sú staðreynd er flestum kunn. Skilt er að huga að þessari sögu, minjum og menningarverðmætum henni tengd. Það verður þó ekki gert með því að frysta tímann á staðnum. Í bókun á fundi skipulagsnefndar árið 2013 lagði undirritaður fram bókun þar sem segir m.a. Byggðin á svæðinu er síður en svo aðlaðandi í dag og það er ekkert í þessu skipulagi sem tryggir að svo verði ekki áfram um ókomin ár. Eftir einhver árabil munu þetta þó verða verðmættar eignir þegar búskapur leggst endanlega af á svæðinu. Þá munu kröfur um aukið byggingarmagn gerast háværari. Kröfur um stærri byggingareiti og flerri hús. Þegar ber á þessum kröfum sbr. athugasemd um skipulagið sem fylgir fundarboði. Ekkert í skipulaginu tryggir gæði þeirra nýbygginga. Þeir byggingaskilmálar sem fyrirliggja í skilmálum eru óraunhæfir og frekar í ætt við draumkennda sýn á svæðið sem einhverskonar íslenskt Amish-hverfi í anda Árbæjarsafns. Þó það sé vilji áhugamann um svæðið að frysta þarna tímann og gamalt gisið byggðamynstur, þá er ekki víst að framtíðareigendur hafi áhuga á því markmiði. Gagnrýnivert er og í raun tortryggilegt að skipulag þessa svæðis skulu hafa verið falið einkaðilum. Hvað olli því að gerð þessa skipulags er sett í hendur einkaaðila, frekar en önnur sem fram fara á vegum bæjarins. Hvað skýrir þann gjörning og hvað liggur að baki því að vernda byggingarétt á örfáum smájörðum í miðju höfuðborgarsvæðisins. Þessar "jarðir" og byggingaréttur á þeim mun verða bitbein fasteiganslala og braskara eftir ekki svo mörg ár ásamt barátta fyrir frekari byggingarétti. Fleirri hús og stærri eftir því sem eigendum/erfingjum að hverri jörð fjölgar. Þarna mun myndast hiða nýja Arnarnes í Garðabæ ef fram fer sem horfir. -Enn er því ítrekað og lagt til að bærinn marki sér stefnu varðandi uppbyggingu og þróun þessa bæjarhluta alls áður en hann er hlutaður niður með þessum hætti í smærri deiliskipulagsverkefni og hugað verði að afleiðingum þess byggðamynsturs sem þarna er boðið upp á.
-Enn er ítrekað og lagt til að það landrými sem lagt er undir í þessu verkefni verði verðmetið og það mat kynnt fyrir skipulagsnefnd, þetta eru jú fjármunir bæjarbúa
-Enn er ítrekað og lagt til að beðið verði með allar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi á þessu svæði þar til að skipulag fyrir svæðið í heild liggur fyrir."
|
|
|
|
7. 1703099 - Höll á Garðaholti, breyting á dsk Garðahverfis |
Lögð fram drög að tillögu á breytingu deiliskipulags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir því að skipulagssvæðið stækki um tæpan hektara vestan Grænagarðs og þar verði gert ráð fyrir byggingarreitum í námunda við bæjarstæði fornbýlisins Hallar. Um leið yrði fornbýlið Höll eitt af þeim býlum sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir sem hluta af því búsetulandslagi sem markmiðið er að varðveita. Lögð fram umsögn aðalskipulagsráðgjafa sem mælir ekki með því að svæði þessu verði ráðstafað fyrr en fyrir liggur með hvaða hætti Garðaholt verður skipulagt annað hvort í rammaskipulagi eða deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í framlagða umsögn. |
|
|
|
8. 1808061 - Nýibær 2 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lögð fram tillaga ábúenda á Nýjabæ 2 um staðsetningu tveggja smáhýsa á túninu sunnan heimreiðar að Nýjabæ sem eru ætluð undir ferðaþjónustu. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að ekki er mælt með tillögunni þar sem að deiliskipulagið gerir m.a. ekki ráð fyrir svo stórum smáhýsum auk þess sem staðsetning þeirra á túninu er ekki í samræmi við það markmið deiliskiulagsins að hnappsetja byggðina nærri upprunalegum bæjarhúsum. Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í framlagða umsögn. |
|
|
|
9. 1810087 - Hvannakur 7, dsk br |
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimiluð verði viðbygging sunnan við íbúðarhús sem nær að hluta til út fyrir ytri byggingarreit. Skipulagsnefnd mælir ekki með því að viðbyggingar nái út fyrir ytri byggingarreit íbúðarhúsa í Akrahverfi. Með því að heimila þessháttar breytingar geti fordæmið orðið til þess að draga úr gæðum rýmis sem er á milli húsa sem hefði neikvæð áhrif á yfirbragð hverfisins. |
|
|
|
10. 1809246 - Skipulag - Keldugata 8-20, dsk breyting |
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Keldugötu 8-20 á tveimur uppdráttum og einni ásýndarmynd. Tillagan felst m.a. í að breyta þremur lóðum í tvær, íbúðum er fjölgað úr 9 í 11 og bílastæðum fjölgar um eitt. Krafa er um aðgengi frá Keldugötu og frá Holtsvegi á lóð Keldugötu 8-12. Að öðru leiti er vísað í meðfylgjandi uppdrætti. Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsstjóra falið að kynna tillöguna á fundi með íbúum og eigendum lóða við Keldugötu. |
|
|
|
11. 1806135 - Dýjagata 15. Breytingar - deiliskipulag |
Á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 23. júlí 2018 var lögð fram tillaga lóðarhafa að eftirfarandi breytingum: -Breyting á inn/útskoti niðurgrafins byggingarhluta. -Breyting á byggingarreit vegna svífandi byggingarhluta. -Breyting á legu byggingarreits þannig að hann snúist lítillega. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um tillögurnar. Skipulagsstjóri metur breytingar vegna svífandi byggingarhluta og legu byggingarreits sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga og vísar þeim til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Dýjagata 13, 16 og 18. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis vegna inn- og útskota niðurgrafinna rýma sé vikið frá kröfu 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik er að ræða. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017. Að lokinni grenndarkynningu bárust tvær athugasemdir og ein undirskrift. Athugasemdum var vísað til skipulagsráðgjafa til umsagnar. Lögð eru fram grenndarkynningargögn, innsendar athugasemdir og umsögn skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir að skipulagsstjóri fundi með þeim sem sendu inn athugasemdir.
|
|
|
|
12. 1810110 - Skipulag - Urriðaholtsstræti 6-12 |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Urriðaholtsstræti 6-12. Tillagan felur í sér breytingu á lóðarmörkum milli lóða Urriðaholtsstrætis 6-8 og 10-12. Lóð Urriðaholtsstrætis 6-8 minnkar um 68 m2 en lóð Urriðaholtsstrætis 10-12 stækkar um 68 m2. Baklóð Urriðaholtsstrætis 6-8 stækkar og rampi sem áður var á lóðarmörkum með kvöð um sameiginlega aðkomu er nú eingöngu á lóð Urriðaholtsstrætis 6-8. Kvöð um sameiginlega aðkomu fellur niður. Lóð Urriðaholtsstrætis 10-12 stækkar nær Urriðaholtsstræti. Byggingarheimildir og fjöldi bílastæða á lóðum er óbreyttur eftir breytingu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og leigjendum beggja lóða. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef aðilar sem grenndarkynning nær til hafa með undirskrift sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna sbr.3.mgr.44.gr.sömu laga. |
|
|
|
13. 1804129 - Bæjargarður, dsk br |
Skipulagsnefnd vísaði á síðasta fundi nefndarinnar málinu til tækni- og umhverfissviðs til nánari úrvinnslu. Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi Bæjargarðs að lokinni auglýsingu sem fram fór 26. júlí til 6. september, ásamt skýringaruppdrætti, framlögðum athugasemdum og umsögn tækni- og umhverfissviðs. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsögn og samþykkir breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til samþykktar.
|
|
|
|
14. 1809099 - Grenndargámar |
Lagt fram minnisblað dags. 7. september 2018. Skipulagsnefnd hvetur til þess að í allri þeirri skipulagsvinnu sem framundan er að horft verði til þess að auka flokkun á sorpi, hvort sem það er í djúpgámum eða á grenndargámastöðvum. |
|
|
|
15. 1810093 - Skíðasvæði í Bláfjöllum, Kópavogsbæ - beiðni um umsögn |
Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 2. október 2018 þar sem óskað er eftir að Garðabær gefi umsögn vegna uppbyggingar á skíðasvæði í Bláfjöllum, hvort að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka í 6. gr. laga nr. 106/2000 og 12. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir á meðan vatnsverndarhagsmunum sé gætt. |
|
|
|
16. 1809281 - Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga |
Lagt fram. |
|
|
|