1. 1512282 - Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi brunavarnaáætlun, dags. 05.12.18. (Slökkviliðsstjóri mætir á fundinn) |
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og Ingveldur Lára Þórðardóttir, skrifstofustjóri og kynntu þau ný samþykkta brunavarnaráætlun. Áætlunin er sett á grundvelli laga um brunavarnir og markmið hennar er að tryggja að slökkviliðið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Brunavarnaáætlunin á að stuðla að því að vernda líf og heilsu fólks, umhverfi og eignir með fullnægjandi eldvarnaeftirliti og viðbúnaði við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi. |
|
|
|
2. 1811076 - Kauptún 4 - Umsókn um byggingarleyfi |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Urriðakoti ehf., kt. 440505-2360 leyfi til innri breytinga í núverandi húsnæði að Kauptúni 4. |
|
|
|
3. 1809324 - Hörgatún 1 - Umsókn um byggingarleyfi |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Aðalbirni Jóelssyni, kt.110674-3689 leyfi til að skipta einbýlishúsi í tvær eignir að Hörgatúni 1. |
|
|
|
4. 1810317 - Víkurgata 10 - Umsókn um byggingarleyfi |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita M Verki ehf., kt. 440113-1840 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 10. |
|
|
|
5. 1810318 - Víkurgata 12 - Umsókn um byggingarleyfi |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 12. |
|
|
|
6. 1806425 - Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Mikaelssyni, kt. 041282-4609 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 14. |
|
|
|
7. 1806145 - Víkurgata 18 - Umsókn um byggingarleyfi |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Auði Jónsdóttur, kt. 110380-3729 leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 18. |
|
|
|
8. 1504148 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi Lundahverfis. |
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag Lundahverfis, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og barst ein athugasemd sem tekið hefur verið tillit til. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. |
|
|
|
9. 1606034 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögur að endurbótum á Hafnarfjarðarvegi og gatnamótum við Vífilsstaðaveg og Lyngás/Lækjarfit. |
Lögð fram. |
|
|
|
10. 1812018 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umferðaröryggisáætlun. |
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að unnið verði að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir Garðabæ. |
|
|
|
11. 1804130 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýri. |
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna lóðar fyrir fjölnota íþróttahús verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. |
|
|
|
12. 1811125 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts. |
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar vinnu við gerð deiliskipulag fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, Sjá einnig 38. gr. skipulagslaga. |
|
|
|
13. 1812077 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurskoðun á gildandi aðalskipulagi. |
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að ekki sé ástæða til að endurskoða aðalskipulag Garðabæjar í upphafi kjörtímabils 2018-2020 enda tók nýtt aðalskipulag gildi í maí á þessu ári. Niðurstaða bæjarstjórnar skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
|
|
|
|
14. 1812002 - Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga, dags. 29.11.2018. |
Lögð fram. |
|
|
|
15. 1812006 - Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um drög að heilbrigðisstefnu, dags. 28.11.18. |
Lögð fram. |
|
|
|
16. 1812011 - Bréf Neytendasamtakanna um styrk, dags. 27.11.18. |
Bæjarráð vísar erindi til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2019.
|
|
|
|
17. 1810351 - Opnum tilboða í framkvæmdir við 1. áfanga Urriðaholtsskóla |
Eftirfarandi tilboð eru lögð fram eftir yfirferð.
E. Sigurðsson ehf. kr. 660.006.445 Eykt ehf. kr. 669.996.231 Flotgólf ehf. kr. 748.743.025 Þarfaþing hf. kr. 776.802.421 Ístak hf. kr. 807.887.190 Munck á Íslandi kr. 994.618.129
Kostnaðaráætlun kr. 859.518.704
Tilboð lægstbjóðanda uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru í kafla 0.2.1. „Kröfur um hæfi bjóðanda.“ Þar kemur fram að bjóðandi skuli á síðastliðnum 10 árum hafa lokið við a.m.k. eitt sambærilegt verk. Með sambærilegu verki er átt við verkefni svipaðs eðlis og að upphæð þess verksamnings hafi að lágmarki verið 70% af tilboði í þetta verk.
Tilboði lægstbjóðanda er af ofangreindum ástæðum hafnað.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Eyktar ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings en um er að ræða innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.
Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
|
|
|
|
18. 1812041 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um brennu á Álftanesi. |
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir að umbeðið leyfi verði veitt. |
|
|
|
19. 1812048 - Umsagnarbeiðni um umsókn um brennu við Sjávargrund. |
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir að umbeðið leyfi verði veitt.
|
|
|
|
20. 1812013 - Bréf Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum varðandi könnun um nöfn á nýbýlum og breytingar á nöfnum býla, dags. 27.11.18. |
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu. |
|
|
|
21. 1812081 - Bréf átakshóps um húsnæðismál varðandi upplýsingar um stöðu húsnæðismála, dags. 06.12.18. |
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu. |
|
|
|