Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar |
15.02.2019 kl. 08:00 kom skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar saman til fundar í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi. |
|
Fundinn sátu: Eiríkur Þorbjörnsson aðalmaður, Einar Örn Magnússon aðalmaður, Sigrún Gísladóttir aðalmaður, Sólveig Guðrún Geirsdóttir aðalmaður, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir aðalmaður, Laufey Ólafsdóttir skólastjóri, Eiríkur Björn Björgvinsson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs. |
|
Fundargerð ritaði: Laufey Ólafsdóttir skólastjóri. |
|
Á fundinn mætti Eiríkur B. Björgvinsson, nýráðinn sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.
Formaður bauð skólanefnd velkomna til 3. fundar kjörtímabilsins og bauð einnig Eirík B. Björgvinsson velkominn á fundinn. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 1805154 - Skólastarfið 2019 |
Skólastjóri fór yfir skólastarfið undanfarnar vikur. Í nóvember var „masterklass“ fyrir langt komna saxófónnemendur undir leiðsögn Sigurðs Flosasonar saxófónleikara. Í desember voru haldnir fjölmargir jólatónleikar á vegum tónlistarskólans auk þess sem allir kennarar skólans héldu tónfundi með sínum nemendum. Þá fóru nemendur í heimsóknir á stofnanir og til félagasamtaka ásamt kennurum sínum. Nemendur komu einnig fram á aðventukvöldum og í messum í kirkjum bæjarins á aðventunni. Í janúar tóku nemendur í framhaldsnámi á hljómsveitarhljóðfæri þátt í hljómsveitarnámskeiði á vegum Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna. Námskeiðinu lauk með glæsilegum tónleikum í Langholtskirkju 23. janúar. Foreldraviðtöl fóru fram í lok janúar. Í byrjun febrúar var „masterklass“ fyrir langt komna píanónemendur undir leiðsögn Kristins Arnar Kristinssonar, öllum píanónemendum var boðið að koma og hlusta líkt og venja er. Samspilsvika var í skólanum vikuna 4. ? 8. febrúar og 9. febrúar var Degi tónlistarskólanna fagnað. Haldnir voru 14 stuttir tónleikar í tónleikasal og blásarasal skólans þar sem fram komu hljómsveitir, sampilshópar af ýmsum stærðum og gerðum, söngvarar og einleikarar. Mikill fjöldi nemenda komu fram á tónleikunum og voru þeir afar vel sóttir.
|
|
|
|
2. 1805154 - Starfskönnun vorið 2019 |
Fram kom hjá skólastjóra að stefnt er að gerð starfsmannakönnunar, líkt og gert er á þriggja ára fresti, á vormánuðum og verður það gert hjá öllum stofnunum Garðabæjar á sama tíma en það er það í fyrsta skipti sem það er gert. Skólastjóri ræðir við mannauðsstjóra um framkvæmd könnunarinnar. |
|
|
|
3. 1805154 - Nýtt merki (logo) fyrir tónlistarskóla Garðabæjar og Álftaness. |
Fyrirhugað er að gera nýtt merki (logo) fyrir sameinaðan Tónlistarskóla Garðabæjar. Haft var samband við grafískan hönnuð til að fá hugmyndir um kostnað. Áætlaður kostnaður er kr. 250.000. Nefndi leggur til að farið verði í að hanna nýtt merki fyrir skólann. |
|
|
|
4. 1805154 - Húsnæðisþarfir skólans |
Rætt um húsnæðismál skólans og hvernig hægt er að bregðast við aukinni þörf á aðstöðu fyrir skólann. Lagt er til að farið verði í þarfa- og rýmisgreiningu. Rætt var um að efla samstarf við menningar- og safnanefnd. |
|
|
|
5. 1901326 - Íbúakönnun - þjónustukönnun 2018 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00. |