10.05.2022 kl. 08:00 kom bæjarráð Garðabæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi. |
|
Fundinn sátu: Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir aðalmaður, Jóna Sæmundsdóttir aðalmaður, Almar Guðmundsson aðalmaður, Sara Dögg Svanhildardóttir aðalmaður, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari, Eiríkur Björn Björgvinsson sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda. |
|
Fundargerð ritaði: Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 2204026 - Asparholt 8 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita Sigrúnu Antonsdóttur, kt. 020788-2409, leyfi til að byggja sólstofu við núverandi hús að Asparholti 8. |
|
|
|
2. 2106507 - Tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti. |
Á fundi bæjarráðs 3. maí sl. voru lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Þarfaþing hf. kr. 1.489.083.561 Fortis ehf. kr. 1.448.688.779
Kostnaðaráætlun kr. 1.189.168.816
Deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda gerði grein fyrir viðræðum við lægstbjóðanda. Niðurstaða liggur ekki fyrir og er afgreiðslu frestað til næsta fundar.
|
|
|
|
3. 2202458 - Útboðslýsing vegna framkvæmda við 2. áfanga Urriðaholtsskóla og mat á fjárhagslegum áhrifum. |
Lögð fram og kynnt greinargerð KPMG um sérstakt mat á áhrifum framkvæmda við 2. áfanga Urriðaholtsskóla á fjárhag sveitarfélagsins í samræmi við ákvæði í 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Megin niðurstaðan er að miðað við fjárhagsstöðu sveitarfélagsins skv. ársreikningi 2021 og fjárhagsáætlun 2022-2025 er útlit fyrir að sveitarfélagið get vel staðið undir fyrirhuguðum framkvæmdum og rekstrarkostnaði vegna 2. áfanga í Urriðaholtsskóla.
Bæjarstjóri upplýsti að bókfærður heildarkostnaður við byggingu Urriðaholtsskóla er nú um 2,6 milljarðar og að framlag Urriðaholts ehf. nemur um 1,5 milljarði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa útboð framkvæmda við byggingu 2. áfanga Urriðaholtsskóla.
|
|
|
|
4. 2205051 - Bréf Golfsambands Íslands varðandi framkvæmdir og röskun á aðstöðu Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, dags. 03.05.22. |
Lagt fram. |
|
|
|
|
|
5. 2205084 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum, dags. 04.05.22. |
Með bréfinu fylgdi bréf Velferðarvaktarinnar, dags. 7. apríl 2022 þar sem vakin er athygli á rannsóknarskýrslunni Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í fjölskylduráði og skólanefnd grunnskóla.
|
|
|
|
|
|
6. 2205061 - Bréf starfsfólks Drafnarhúss varðand styrk vegna námsferðar, dags. 03.05.22 |
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra. |
|
|
|
7. 2204530 - Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar (umhverfisvæn orkuöflun), 582. mál., dags. 29.04.22. |
Lagt fram. |
|
|
|
8. 2205027 - Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga (einstaklingar sem flytjast til innan viðskiptafyrirtækis), 482. mál., dags. 02.05.22. |
Lagt fram. |
|
|
|
9. 2205028 - Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um sorgarleyfi, 593. mál., dags. 02.05.22. |
Lagt fram. |
|
|
|
10. 2205052 - Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu í þágu barna, snemmtækur stuðningur), 530. mál., dags. 02.05.22. |
Lagt fram. |
|
|
|
11. 2204010 - Fyrirspurn um fjölda tilkynninga er varðar þjónustu við fatlað fólk |
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs greindi frá svari réttindagæslumanns en beðið er eftir endanlegu svari hans. Þá gerði sviðsstjóri fjölskyldusviðs grein fyrir að í málaskrá er fjöldi mála sem tengist málefnum fatlaðs fólks á árunum 2018-2022 rúmlega 600 og er þar ekki haldið sérstaklega utan um tilkynningar er varða þjónustuna í einstaka málum sem geta varðað ráðgjöf, umsagnabeiðnir, notendasamninga, notendastýrða persónulega aðstoð, SIS mat o.fl.
Umræða var um málið og rifjuð upp samþykkt í bæjarstjórnar frá árinu 2020 um að semja drög að verklagsreglum um ábendingakerfi vegna þjónustu við fatlað fólk.
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00. |