1. 2001444 - COVID19 - hættustig almannavarna. |
Á fund bæjarráðs mætti Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu og fór yfir stöðu mála. Sviðsstjórar fóru yfir þær samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi og áhrif þeirra á starfsemi Garðabæjar.
Bæjarfulltrúinn Gunnar Valur Gíslason sat fund bæjarráðs undir dagskrárlið 1.
|
|
|
|
2. 2008125 - Skólabyrjun haustið 2020 |
Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir stöðu mála varðandi skólabyrjun hjá grunn- og leikskólum og Tónlistarskóla Garðabæjar.
Útfærsla á aðlögun nýrra barna í leikskólum er í skoðun með tilliti til gildandi samkomutakmarkana. Um 240 ný börn eru að innritast í leikskóla Garðabæjar í haust. Einnig var gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við skólahúsnæði og mönnun í skólum. Svipaður fjöldi nemenda er á grunnskólastigi milli skólaára. Umræður voru um áhrif Covid-19 á starfsemi skólastarfs.
|
|
|
|
3. 1904109 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)- viðaukar 5-6 |
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 5 og 6 við fjárhagsáætlun Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 5 og 6 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 5 - æskulýðs- og íþróttamál. Aðgangseyrir sundlauga kr. 9.000.000 Útleiga fasteigna kr. 2.500.000 Félagsmiðstöðvar (velferð barna og ungmenna) kr. 2.000.000 Covid útgjöld kr. 2.000.000 Hestamannafélagið Sóti (bygging reiðskemmu) kr. 10.000.000 Styrkur til íþrótta og heilsurækt kvenna (19. júní sjóður) kr. 4.000.000 Ásgarður íþróttamiðstöð v. lokunar sundlaugar kr. -1.000.000 Mýrin íþróttamiðstöð kr. -500.000 Íþróttahús Sjálandsskóla kr. -500.000 Aðrir styrkir til íþrótta- og æskulýðsmála kr. -2.000.000 Samtals breyting kr. 25.500.000
Kostnaðarauka mætt. Niðurlagning á 19. júní sjóði samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá 4. júní 2020 kr. 24.900.000 Lækkun á varasjóði kr. 600.000
Viðauki 6 - hreinlætismál. Leggja þarf Sorpu bs. til aukið fjármagn á árinu 2020 til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga sbr. tillögu stjórnar byggðasamlagsins sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 7. júlí 2020.
Lagt er til að eigendur leggi til Sorpu bs. 1.000 mkr. á árunum 2020 og 2021 eða 500 mkr. hvort ár. Hlutur Garðabæjar nemur 36,3 mkr. á árinu 2020.
Stofnframlag til Sorpu 08210-9911 kr. 36.300.000
Kostnaðarauka mætt. Lækkun á varasjóði 31916-7179 kr. -36.300.000
|
|
|
|
4. 2002243 - Hellagata 2 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rent Nordic ehf., kt. 700113-1160, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 2. |
|
|
|
5. 2008101 - Hellagata 4 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rent Nordic ehf., kt. 700113-1160, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 4. |
|
|
|
6. 2008102 - Hellagata 6 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rent Nordic ehf., kt. 700113-1160, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 6. |
|
|
|
7. 2007012 - Fluguvellir 4 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Forsætisbýlinu ehf., kt. 440505-0740 leyfi til að byggja kvisti á þak og gera innri breytingar við núverandi hestshús að Fluguvöllum 4. |
|
|
|
8. 2005031 - Maríugata 17 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GT Verktökum ehf., kt. 651004-2090, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 17. |
|
|
|
9. 2005033 - Maríugata 19 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GT Verktökum ehf., kt. 651004-2090, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 19. |
|
|
|
10. 2005030 - Maríugata 21 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GT Verktökum ehf., kt. 651004-2090, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 21. |
|
|
|
11. 2006307 - Litlabæjarvör 17 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóhönnu Ríkarðsdóttur Færseth, kt. 191181-7199, leyfi til að byggja einbýlishús að Litlabæjarvör 17. |
|
|
|
12. 2008069 - Bréf (afrit) landeigenda að spildu í landi Breiðabólstaða varðandi umgengni á landi, dags. 17.07.20. |
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs og heilbrigðiseftirlits og felur bæjarstjóra að ræða við hlutaðeigandi aðila. |
|
|
|
13. 2007276 - Erindi Meðbyrs ehf. varðandi umsókn um leyfi fyrir tveimur almenningsíþróttaviðburðum í landi Garðabæjar ásamt beiðni um styrk, dags. 02.08.20. |
Bæjarráð samþykkir að veita Meðbyr ehf. framkvæmdaleyfi fyrir skipulagningu tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020, að því gefnu að jákvæðar umsagnir fáist frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem hefur umsjón með Heiðmörk og Umhverfisstofnun vegna hluta leiðar sem fer um friðland. Einnig skal tryggt að skipuleggjandi fari að gildandi samkomutakmörkunum og hugi að sóttvörnum við framkvæmd íþróttaviðburðanna.
Bæjarráð vísar bréfinu og styrkbeiðninni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
|
|
|
|
14. 2007767 - Bréf Kópavogsbæjar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnorðaholts og Smalaholts vegna lóðar við Þorrasali 37, dags. 23.07.20. |
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd. |
|
|
|
15. 2008085 - Bréf H.F. varðandi útbreiðslu kerfils í Garðabæ, dags. 04.08.20. |
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í umhverfisnefnd. |
|
|
|
16. 2008064 - Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu um styrk til Garðabæjar til að auka félagsstarf fullorðins fatlaðs fólks, dags. 09.07.20. |
Í tilkynningunni kemur fram að ráðuneytið hefur tekið til meðferðar umsókn forstöðumanns heimilisins að Miðskógum og samþykkt að veita Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 1.600.000 til að auka félagsstarf fatlaðs fólks sumarið 2020. |
|
|
|
17. 1811125 - Bréf Skipulagsstofnunar varðandi afgreiðslu á deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 23.07.20. |
Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hafi yfirfarið gögn deiliskipulags fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. maí sl. Skipulagsstofnun gerir athugasemdir við deiliskipulagið og bendir á að ekki sé ljóst hvernig áform um uppbyggingu íbúða á umræddu svæði sem skilgreint er sem verslun og þjónusta samræmist landnotkun í gildandi aðalskipulagi.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
|
|
|
|