12.11.2019 kl. 08:00 kom bæjarráð Garðabæjar saman til fundar í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg. |
|
Fundinn sátu: Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir aðalmaður, Gunnar Valur Gíslason aðalmaður, Almar Guðmundsson aðalmaður, Sara Dögg Svanhildardóttir aðalmaður, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari, Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur, Bergljót K Sigurbjörnsdóttir félagsmálastjóri, Eiríkur Björn Björgvinsson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Guðjón Erling Friðriksson, bæjarritari. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 1904109 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023) |
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs við afgreiðslu mála samkvæmt dagskrárliðum 1 -2. Lagt fram yfirlit með samanburði á álagningarreglum sveitarfélaga árið 2019. Lagt fram yfirlit yfir erindi sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Lagt fram nýtt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2020 og fjárhagsáætlana til þriggja ára, dags. 1. nóvember 2019. Lagt fram yfirlit yfir ábendingar og tillögur sem borist hafa frá íbúum.
|
|
|
|
|
|
2. 1806461 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki nr. 9 |
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 9. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2019 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 9
Vinnuskóli Garðabæjar Vegna hækkunar á taxta unglingavinnu sem samþykkt var í vor af bæjarráði og fjölgunar ungmenna miðað við fyrra ár þarf að hækka fjárheimildir Vinnuskóla Garðabæjar um 15,0 mkr..
Vinnuskóli Garðabæjar 15.000.000 06-299 ?xxxx
Sumarátak vegna vinnu ungs fólk. Vegna fleiri umsókna um sumarstörf hjá Garðabæ en áætlað var þarf að hækka fjárheimild sumarátaksins um 35,8 mkr.
Sumarátak vegna vinnu ungs fólks 35.800.000 11330-xxxx
Skipulagsvinna. Vegna mikillar aðkeyptrar vinnu við gerð rammahluta aðalskiplags og deiliskipulagsáætlana er nauðsynlegt að hækka fjárheimildir til skipulagsmála.
Aðalskipulag/rammaskipulag 50.000.000 9220-xxxx Deiliskipulag 6.000.000 09230-xxxx
Samstarfssamningur um uppbyggingu á Stórásreit. Vegna samkomulags við Mótás Garðabæ ehf., dags. 27.09.19 um uppbyggingu byggðar á Stórásreit eru færðar til tekna tekjur vegna byggingarréttargjalds að fjárhæð kr. 98.455.500.
Seldur byggingarréttur -98.455.500 31400-0397
Mismunur 8.344.500 Útgjaldaauki
Útgjaldaauka skal mætt með lækkun á varasajóði um sömu upphæð.
Varasjóður -8.344.500 31916-7179
|
|
|
|
3. 1905258 - Smáraflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Ólafssyni, kt. 121174-3329, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Smáraflöt 11. |
|
|
|
4. 1910209 - Afgreiðsla umhverfisnefndar um lengingu á hundabanni á varptíma við Vífilsstaðavatn. |
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um lengingu á hundabanni á varptíma við Vífilsstaðavatn þannig að hundabann verði á tímabilinu frá 15. apríl til 15. ágúst. |
|
|
|
|
|
5. 1812088 - Tilkynning frá Heilsugæslu Garðabæjar um tilnefningu á nýjum fulltrúa i öldungaráð. |
Lögð fram tilkynning frá Heilsugæslu Garðabæjar þar sem fram kemur að Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið tilnefnd sem fulltrúi í öldungaráð í stað Guðlínar Jónu Ómarsdóttur. |
|
|
|
6. 1911108 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi samþykkt stjórnar um fræðslu fyrir starfsmenn sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks, dags. 30.10.19. |
Lagt fram. |
|
|
|
|
|
7. 1911165 - Bréf Hafnarfjarðar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi við Krýsuvíkurbeg í Krýsuvík, dags. 01.11.19. |
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar. |
|
|
|
8. 1911167 - Tilkynning frá forsætisráðuneytinu um skýrslu framtíðarnefndar, dags. 08.11.19. |
Lögð fram. |
|
|
|
9. 1911091 - Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 66. mál., dags. 04.11.19. |
Lagt fram. |
|
|
|
10. 1911151 - Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um ávana- og fíkniefni (neyslurými), 328. mál., dags. 06.11.2019. |
Lagt fram. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:30. |