21.10.2020 kl. 16:00 kom fjölskylduráð Garðabæjar saman til fundar í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg. |
|
Fundinn sátu: Almar Guðmundsson formaður, Bjarni Theódór Bjarnason aðalmaður, Sigþrúður Ármann aðalmaður, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir aðalmaður, Harpa Þorsteinsdóttir aðalmaður, Bergljót K Sigurbjörnsdóttir félagsmálastjóri, Hildigunnur Árnadóttir félagsráðgjafi, Snædís Björnsdóttir verkefnastjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir Umsjónarfélagsráðgjafi. |
|
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið: |
|
1. 2005424 - Starfshópur - að tryggja eftirfylgni með stöðu barna e-COVID 19 |
Mál nr. 2005424 lagt fram, eftirfylgni með stöðu barna vegna COVID 19. Hildigunnur Árnadóttir fer yfir þau gögn sem fyrir liggja um stöðu barna og þær aðgerðir sem þegar hefur verið farið í og tillögur að mikilvægum skrefum. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með vinnu starfshópsins, leggur áherslu á hann starfi áfram og veiti upplýsingar um stöðu mála til bæjarráðs og þeirra nefnda á vegum bæjarins sem fara með málefni barna í Garðabæ. |
|
|
2. 2009546 - Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu |
Mál nr. 2009546 lagt fram, beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu. Mælir fjölskylduráð Garðabæjar með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins. |
|
|
3. 2009283 - Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd |
Tekið er fyrir mál nr. 2007267, beiðni Keðjunnar hjá Reykjavíkurborg um úttekt vegna umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda. Fyrir liggur greinargerð ráðgjafa í barnavernd. Mælir fjölskylduráð Garðabæjar með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.
|
|
|
4. 1911163 - Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun |
Mál nr. 1911163, Lýðræðisstefna Garðabæjar, lagt fram til umræðu. Farið var yfir stöðu málsins, framvindu þess og gerð grein fyrir fyrirhugaðri tímalínu. |
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. . |