1. 2407179 - Sigurhæð 7 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn um breytingar á einbýlishúsin að Sigurhæð 7. Umsóknin felur í sér viðbyggingu norðan við núverandi hús. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd um veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. |
|
|
2. 2501515 - Sviðholtvör 9 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vara að lokinni grenndarkynningu sem nær til einbýlishúslóðarinnar Sviðholtsvör 9. Tillagan gerir ráð fyrir 15 m2 baðstofu (saunu) utan byggingarreits. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. |
|
|
3. 2502225 - Sunnuflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar einbýlishússins að Sunnuflöt 4. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti enda eru þeir í samræmi við ákvæði deiliskipulags. |
|
|
4. 2503388 - Hæðarbyggð 22 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsókn gerir ráð fyrir nýjum svölum sem fara út fyrir byggingarreit til vesturs. Svalir í suðurhorni verði lokaðar af og þeim breytt í íverurými. Skipulagsstjóri vísar umsókn til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem ekkert deiliskipulag telst í gildi fyrir Byggðir. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Hæðarbyggð 20, 23, 24, 25 og 27 og Brekkubyggð 48, 54 og 56. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. |
|
|
5. 2504453 - Útholt 43 (áður 35) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
|
|
|
6. 2410358 - Frjóakur 5 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. |
|
|
7. 2407382 - Vorbraut 15 - Umsókn um byggingarleyfi |
Lagðir fram uppfærðir uppdrættir fyrir Vorbraut 5 og 15 að nýju vegna aðstæðna í landi. Uppdrættir gera nú ráð fyrir því að hæð gólfs aðkomuhæðar er hærri en uppgefinn gólfkóti skv. hæðablaði (82.10) og verður 83.00, svo koma megi fyrir rampa með ásættanlegum halla niður í bílakjallara. Hámarkshæð húss breytist ekki og verður í samræmi við ákvæði deiliskipulags. Uppdrættir gera nú einnig ráð fyrir því að byggingarhluti niðurgrafinns bílakjallara að sunnanverðu nái 80 cm út fyrir byggingarreit, til að styrkja burðarþol byggingarinnar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað bæði ofangreind atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. |
|
|
8. 2505198 - Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Afgreiðslu frestað og óskað eftir ítarlegri gögnum. |
|
|
9. 2505238 - Seinakur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Skipulagsstjóri minnir á að allur frágangur á lóðarmörkum skal gerður í samráði við nærliggjandi lóðarhafa. |
|
|
10. 2503132 - Holtsbúð 71 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi |
Lögð fram tilkynning um framkvæmdir sem undanþegnar eru byggingarleyfi. Gert er ráð fyrir smáhýsi, baðstofu sem er 9,6 m2 að grunnfleti og girðingu að lóðarmörkum að sunnanverðu að opnu svæði sem er að hluta til allt að 1,8 m að hæð. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu. |
|
|
11. 2505403 - Vesturtún 40 - Skúr - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu á smáhýsi sem undanþegið er byggingarleyfi. Gert er ráð fyrir staðsetningu smáhýsisins við lóðarmörk að austanverðu að opnu svæði. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu. |
|
|
12. 2402325 - Hönnun - Útboð - 3 stígar Hjóla og göngustígur á milli hfj og kóp |
Lögð umsókn Betri samgangna fyrir framkvæmdarleyfi fyrir samgöngustíg meðfram Hafnarfjarðarvegi, við neðanvert Súlunes. Uppdrættir og verklýsing fylgja umsókn. Skipulagsstjóri veitir framkvæmdaleyfi sem er í samræmi við framlögð gögn, skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til greinar 2.h í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022. |
|
|
13. 2506016 - Naustahlein 18 - Sólskáli |
Skipulagsstjóri telur ólíklegt að skipulagsnefnd muni fallast á að heimila viðbótar sólskála við sömu íbúð þar sem að sólskáli er nú þegar til staðar. |
|
|