1. 2101189 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi skýrslu um stöðu barna með fjölþættan vanda. 11.06.21. |
Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í fjölskylduráði, íþrótta- og tómstundaráði, leikskólanefnd og skólanefnd grunnskóla. |
|
|
|
|
|
2. 2106128 - Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti, dags. 03.06.21. |
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í fjölskylduráði, íþrótta- og tómstundaráði, leikskólanefnd og skólanefnd grunnskóla og til skoðunar og frekari vinnslu hjá fræðslu- og menningarsviði. |
|
|
|
|
|
3. 2103510 - Blikanes 22 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita BL22 ehf., kt. 700919-2500, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Blikanesi 22.
Gunnar Einarsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
|
|
|
|
4. 2104427 - Grenilundur 12 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðna Geir Jónssyni, kt. 131066-4579, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Grenilundi 12. |
|
|
|
5. 2103226 - Klukkuholt 11 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lindu Björk Jóhannsdóttur, kt. 171271-5339, leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi og millilofti í núverandi húsi að Klukkuholti 11. |
|
|
|
6. 2101200 - Útboðsskilmálar vegna þjónustu iðnaðarmanna. |
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir skilmálum útboðs vegna þjónusta iðnaðarmanna og fór sérstaklega yfir breytingar sem gerðar hafa verið á skilmálum sem áður voru auglýstir en afturkallaðir.
Bæjarráð samþykkir útboðskilmálana og auglýsingu útboðs vegna þjónustu málara og rafvirkja.
|
|
|
|
7. 2103138 - Bréf Gunnars Jónssonar varðandi gatnamál að Hleinahverfi, 08.06.21. |
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara. |
|
|
|
|
|
8. 2103568 - Almenningssamgöngur í Garðabæ - leið 22 og leið 23. |
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við Strætó bs. varðandi útfærslu á tillögum um breytingar á leið 22 og leið 23.
Bæjarstjóri upplýsti að verið er að skoða mögulegar breytingar á akstri frístundabílsins.
Bæjarráð leggur áherslu á að allar breytingar á leiðakerfinu verði kynntar með ítarlegum hætti fyrir íbúum.
|
|
|
|
9. 2101335 - Niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær. |
Lögð fram fundargerð kjörstjórnar Garðabæjar frá 8. júní 2021 varðandi niðurstöðu talningar í rafrænni íbúakosningu sem stóð yfir dagana 26. maí til og með 7. júní 2021.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi áætlun um framkvæmd verkefna sem hlutu kosningu í rafrænum íbúakosningum - Betri Garðabær.
Heiðmörk stígar 20.0 mkr. Kort með göngu- og hlaupaleiðum í Garðabæ 5.0 mkr. Gosbrunnur fyrir glaða krakka 5.0 mkr. Fjölga bekkjum og áningastöðum í Garðabæ 10.0 mkr. Aðstaða fyrir sjósport í Sjálandi 20.0 mkr. Stjörnuskoðunarsvæði í upplandi Garðabæjar 6.0 mkr. Infrarauður saunaklefi í Ásgarðslaug 20.0 mkr. Ærslabelgur í Sjáland 3.5 mkr. Skólalóð Sjálandsskóla - aparóla 3.5 mkr. Skólalóð Sjálandsskóla - lítil trampólín 3.5 mkr. Ærslabelgur við Kauptún 3.5 mkr. Alls 100.0 mkr.
Framkvæmdaáætlun verður birt á vef Garðabæjar og uppfærð á þriggja mánaða fresti og einnig verða framkvæmdirnar sýnilegar á kortavef bæjarins, undir „verklegar framkvæmdir“;. Reglulega verða birtar fréttir á vef Garðabæjar og Facebook síðu bæjarins um framgang verkefnanna og þegar hverju verkefni er lokið.
|
|
|
|
10. 2009461 - Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um sameiningu heilbrigðiseftirlitssvæða, dags. 08.06.21. |
Í tilkynningunni kemur fram að drög að reglugerð um sameiningu heilbrigðiseftirlitssvæða hefur verið kynnt í samráðsgátt. Í reglugerðinn er gert ráð fyrir að Mosfellsbær og Seltjarnarnes sameinist heilbrigðiseftirliti Hafnafjarðar, Garðabæjar og Kópavogs. |
|
|
|
11. 2106194 - Húsnæðismál Fjölbrautaskólans í Garðabæ. |
Formaður bæjarráð gerði grein fyrir fundi sem hún átti ásamt bæjarstjóra með skólastjórnendum Fjölbrautaskólans í Garðabæ um húsnæðismál skólans
Bæjarráð ítrekar fyrir áskoranir um að mennta- og menningarmálaráðherra beiti sér fyrir því að hafinn verði strax undirbúningur að stækkun á húsnæði Fjölbrautaskólans í Garðabæ og að skipuð verði byggingarnefnd til að vinna að málinu. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir með viðræðum við ráðherrann.
|
|
|
|
12. 2010385 - Opnun tilboða í endurskoðun fyrir Garðabæ. |
Eftirfarandi tilboð bárust í örútboði á vegum Ríkiskaupa í endurskoðun fyrir Garðabæ.
Enor ehf. kr. 3.690.000 Grant Thornton endurskoðun ehf. kr. 4.480.000 PricewaterhouseCoopers ehf. kr. 5.300.000 Deloitte ehf. kr. 6.200.000
Kostnaðaraáætlun kr. 8.000.000
Bæjarráð samþykkir að fara að tillögu Ríkskaupa um að samþykkja tilboð lægstbjóðanda Enor ehf. og felur Ríkiskaupum að tilkynna bjóðendum um val tilboðs.
|
|
|
|
13. 2101191 - Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi útgáfu á heildarstefnu í úrgangsmálum, dags. 09.06.21. |
Lögð fram. |
|
|
|
14. 2105322 - Bréf Sigríðar Örnu Arnþórsdóttur varðandi skipulagsmál á Álftanesi, dags. 10.06.21. |
Bæjarstjóra falið að svara bréfritara. |
|
|
|
|
|
15. 2103137 - Umsóknir um hesthúsalóðir á Kjóavöllum. |
Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra varðandi umsóknir um hesthúsalóðir á Kjóavöllum.
Alls bárust 55 umsóknir um þær 20 lóðir sem auglýstar voru við Æsuvelli og Sunnuvelli.
Bæjarráð samþykkir að vegna fjölda umsókna verði lóðum við Stjörnuvelli og Tinnuvelli bætt við til að hægt verði að verða við öllum umsóknum.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Erlu Guðnýju Gylfadóttur lóðinni nr. 2 við Sunnuvelli fyrir starfsemi reiðskóla fyrir börn og ungmenni.
Bæjarráð samþykkir að lóðum verði úthlutað með að draga um nöfn umsækjenda og þá húsagerð sem þeir hafa sótt um.
|
|
|
|
16. 2106273 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stjórnsýslu byggðasamlaga, dags. 10.06.21. |
Með bréfinu fylgdi m.a. drög að viðaukum við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. þar sem m.a. er kveðið á um skipan, hlutverk og umboð stefnuráðs, stefnuþing byggðasamlaga og bráðabirgðahlutverk stefnuráðs. Jafnframt er óskað eftir tilnefningu sveitarfélaganna í stefnuráð en tilnefningar skulu hafa borist eigi síðar en 15. ágúst nk. |
|
|
|
17. 2106274 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi erindi áhugafólks um samgöngur fyrir alla, dags. 10.06.21. |
Lagt fram ásamt bréfi framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf. þar sem fram kemur að á þessu stigi hafi ekkert komið fram sem kalli á breytingar á þeirri stefnu að fjárfest verði í hágæða hraðvagnakerfi fyrir höfuðborgarsvæðið. |
|
|
|
|
|