1. 2104420 - Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns. Tillagan nær til um 70 ha svæðis sem afmarkast að Reykjanesbraut að vestan, Vífilsstaðalæk að norðan, Heiðmörk að austan og Urriðaholti að sunnan. Maríuhellar eru innan svæðisins. Markmiðið með deiliskipulaginu er að skipuleggja svæði sem henti til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu samhliða því að vernda jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar. Skilgreint er fyrirkomulag stíga, m.a. er nýr stofnstígur staðsettur og einnig er fyrirkomulag fræðslu- og áningarstaða skilgreint. Veglína Flóttamannavegar er endurskoðuð til að bæta öryggi á veginum og er gert ráð fyrir brú yfir Flóttamannaveg við Vatnsmýrina. Lega og útfærsla vegarins er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 þar sem gert er ráð fyrir að vegurinn verði skilgreindur sem tengibraut. Gert er ráð fyrir stígatengingu við mögulega göngubrú yfir Reykjanesbraut. Fyrirkomulag göngu- og hjólastíga þarf að mynda tengingu milli hverfanna sem eru norðan, sunnan og vestan við svæðið. Sérstaklega þarf að tryggja aðgengi íbúa hverfanna að íþróttasvæðinu í Vetrarmýrinni, sem er norðan við fólkvanginn, úr hverfunum umhverfis. Einnig þarf að tryggja tengingu við útivistarsvæðin í Heiðmörk og Urriðakotshrauni. Tillagan hefur verið mótuð í samráði við Umhverfisstofnun enda er Fólkvangur Vífilsstaðahrauns og Maríuhella innan svæðisins. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar og samhliða tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta. |
|
|
|
2. 2009538 - Útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum - nýtt deiliskipulag |
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum. Svæðið sem deiliskipulagstillagan nær til afmarkast af landamerkjum Urriðakots og Vífilsstaða til vesturs, að landi Setbergs til austurs, að Flóttamannavegi til norðurs og að landamerkjum Urriðakots og Garðalands til suðurs. Samhliða verður kynnt tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs sem er í ferli á vegum Umhverfisstofnunar. Innan svæðisins er gert ráð fyrir golfvelli þar sem núverandi golfvöll er að finna auk þess sem gert verður ráð fyrir golfbrautum í Urriðakotshrauni sem verður innan fyrirhugaðs fólkvangs og í samræmi við tillögu að friðlýsingarákvæðum. Gert verður ráð fyrir útivistarstígum um fólkvanginn, sem tengjast aðliggjandi stígum sem er í samræmi við tillögu að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur. Reiðstígur í Urriðakotshrauni mun samkvæmt tillögu tengjast nýjum reiðstíg niður Vífilsstaðahlíð eins og tillaga að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur gerir ráð fyrir. Núverandi reiðstígur næst Maríuhellum breytist í útivistarstíg. Markmið með gerð deiliskipulagsins eru eftirfarandi: -Stuðlað verði að verndun og viðhaldi sérstæðra hraun- og jarðmyndana og náttúrulegs gróðurfars á svæðinu. -Í Urriðavatnsdölum verði góð aðstaða til fjölbreyttrar útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. -Aðgengi fyrir almenning um útivistarsvæðið verði gott, stígar verði vandaðir og í góðum tengslum við stígakerfi í upplandi Garðabæjar. -Á Urriðavelli verði aðstaða til golfiðkunar í hæsta gæðaflokki. -Stuðlað verði að fræðslu um jarðfræði, sögu svæðisins og menningarminjar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar og samhliða tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur og deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta.
|
|
|
|
3. 2210531 - Heiðmörk, breyting deiliskipulags. Reiðstígar og deiliskipulagsmörk. |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar. Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu: -Afmörkun deiliskipulagsins breytist vegna nýs deiliskipulags að vestan og sunnanverðu. Nýtt deiliskipulag Vífilsstaðahrauns mun ná yfir Flóttamannaveg og er afmörkun aðlöguð að því. Samkomulag hefur náðst um eignalínu milli Heiðmerkur og landeigenda Urriðavatnslands og er afmörkun aðlöguð að því. Stærð skipulagsins breytist úr 907 ha í 887 ha. -Gert er ráð fyrir nýrri lóð og byggingarreit fyrir aðstöðu Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð. Gert er ráð fyrir um 100 m2 húsi með heilsársstarfsemi. -Bílastæði við Vífilsstaðahlíð við Maríuvelli færast yfir í deiliskipulag Vífilsstaðahrauns en áfram er gert ráð fyrir gönguleiðum frá því. Aðkomusvæði við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar er innan friðlýsingar Búrfellsgjár og nágrennis og mun tilheyra deiliskipulagi þess þegar þar að kemur. Bílastæði vestan Vífilsstaðahlíðar við trjásýnireit og bílastæði við upphaf línuvegar færast yfir í deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum. -Lega reiðleiða og stíga endurskoðuð. Nýr reiðstígur frá Grunnuvatnaskarði austan Ljóskollulágar og niður Vífilsstaðahlíð yfir á reiðleið í Búrfellshrauni vestan við Heiðmerkurveg. -Deiliskipulagsuppdráttur og viðeigandi myndir í greinargerð uppfærðar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar, einnig samhliða tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns og tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta.
|
|
|
|
4. 2210532 - Urriðaholt austurhluti, breyting deiliskipulags, reiðstígur |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því að reiðstígur meðfram Flóttamannavegi verði felldur út úr deiliskipulagi. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær m.a. til stíga-og umferðarkerfis í Upplandi Garðabæjar og samhliða tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns, tillögu að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur. |
|
|
|
5. 2211528 - Búðarflöt 1 - viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa útsýnisrými ofan á núverandi byggingu að Búðarflöt 1. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri grenndarkynni byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir útsýnisrými. Ekkert deiliskipulag telst í gildi en drög að deiliskipulagi fyrir Vestri Skógtjarnarsvæði gerðu ráð fyrir útsýnisrými á aðliggjandi lóð auk þess sem fordæmi fyrir útsýnisrými eru í nágrenninu. |
|
|
|
6. 1405080 - Móar, endurskoðað deiliskipulag |
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi Móa (Hrísmóa, Lyngmóa og Kjarrmóa) sem unnin voru árið 2020. Vegna heimsfaraldurs var málinu frestað þar sem til stóð að halda íbúafund í tengslum við forkynningu tillögunnar. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins og markmiðum þess. Skipulagsnefnd vísar málinu til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði. |
|
|
|
7. 2206114 - Jafnakur 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Lögð fram að nýju tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra að lokinni grenndarkynningu. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að funda með umsækjanda og þeim sem athugasemd gerðu. |
|
|
|
8. 2209212 - Hagaflöt 1 - Deiliskipulagsbreyting |
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að lóðarmörkum að norðan og austanverðu fyrir viðbyggingu. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir samtali við hönnuð og umsækjanda. Skipulagsnefnd ítrekar að fjarlægð byggingarreits frá lóðarmörkum að austanverðu verði 1 metri og að byggður flötur á lóð fari ekki upp fyrir 35% af flatarmáli lóðar. |
|
|
|
9. 2211541 - Dýjagata 7 - breyting á deiliskipulagi - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs |
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar. |
|
|
|
10. 2211275 - Urriðaholtsstræti 9-15 - bílastæði - Fyrirspurn til tækni og umhverfissviðs |
Lögð fram fyrirspurn um ákvæði um fjölda bílastæða á landi eða bílageymslu. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað fjölda og skiptingu bílastæða varðar eins og fyrirspurn lýtur að. |
|
|
|
11. 2201384 - Loftslagsstefna fyrir höfuðborgarsvæðið - Bókun 535. fundar stjórnar SSH |
Loftlagsstefnan lögð fram. |
|
|
|