Frábær stemning á Garðatorgi
Fjöldi manns kom saman á Garðatorgi sl. laugardag til að horfa á fyrsta leik Íslands á HM í knattspyrnu karla.
-
HM á Garðatorgi - bein útsending á risaskjá þriðjudaginn 26. júní kl. 18:00. Ísland - Króatía
Fjöldi manns kom saman á Garðatorgi sl. laugardag til að horfa á fyrsta leik Íslands á HM í knattspyrnu karla. Garðbæingar létu rigninguna ekki á sig fá og mættu vel búnir til að horfa á Íslendinga mæta Argentínumönnum á risaskjá. Stemningin var frábær og fögnuðurinn mikill þegar við lönduðum jafntefli.