Vinnuleiðbeiningar fyrir sumarstarfsfólk

Vinnuleiðbeiningar og hagnýtar upplýsingar fyrir sumarstarfsfólk Garðabæjar

Garðyrkjudeild, vinnuskóli, áhaldahús og umhverfishópar.

Vinnuleiðbeiningar þessar eru ætlaðar starfsmönnum Garðabæjar sem sinna garðyrkju- og umhverfistengdum verkefnum. Í leiðbeiningunum er farið yfir framkvæmdina, tilgang og verklag. Einnig er framkvæmdinni lýst í þeirri vinnuröð sem ætlast er til að verkið sé unnið. Verkfæri, tæki og efni sem nota skal við vinnuna eru listuð upp á skýran hátt. Einnig fylgja hverri leiðbeiningu lýsandi myndir vegna verkefnis.

 Leiðbeiningarnar eru ekki tæmandi heldur eru um að ræða stuttar lýsingar þar sem aðalatriði eru dregin saman. Komi upp vafaatriði eða ef hlutir koma ekki nægilega skýrt fram í leiðbeiningum skal ávallt leita til verkstjóra.

ATH vinnuleiðbeiningar hafa ekki verið uppfærðar með vinnutímum fyrir árið 2019.

Vinnuleiðbeiningar fyrir sumarstarfsfólk - gefið út árið 2015 af EFLU hf. fyrir Garðabæ (pdf-skjal- 37 MB)