Old age homes in Garðabær
Note that this news is older than 12 months.

Bouncy castles are extremely popular these days. They are inflatable jumping mattresses that come in all shapes and sizes. The idea and function is simple; on a bouncy castle, everyone should be able to enjoy themselves and play by jumping and bouncing.
Ærslabelgir eru gríðarlega vinsælir um þessar mundir. Um er að ræða uppblásnar hoppudýnur sem koma í allskyns stærðum og gerðum. Hugmyndin og virknin er einföld; á ærslabelg eiga allir að geta notið sín og leikið sér við að hoppa og skoppa.
Búið er að setja upp 100 ærslabelgi um allt land og hafa þeir notið mikilla vinsælda og þar af eru þrír í Garðabæ, og fleiri á leiðinni. Ærslabelgirnir í Garðabæ eru staðsettir við Hofsstaðaskóla, í Bæjargarði og við Álftaneskóla. Opnunartími ærslabelgjanna sem staðsettir eru við skólana eru frá kl. 16 til 21 þar til skólar loka fyrir sumarið, og eftir það eru þeir opnir frá 10 til 21. Ærslabelgurinn í Bæjargarði er opinn alla daga frá kl. 10 til 21.
Hér er hægt að sjá staðsetningu allra ærslabelgja á Íslandi á korti.
Við hvetjum alla Garðbæinga, stóra sem smáa, að hoppa á ærslabelgjunum í sumar!