Skip to content
EN

Birthday party for the Garðabær library

News
12.12.2025

The Garðabær Library celebrates its 57th anniversary with a fun program.

Afmæli Bókasafns Garðabæjar verður haldið 18. desember. Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar syngur nokkur vel valinn lög.

Erla Bil Bjarnardóttir sýnir nokkrar vel valdar myndir úr fortíðinni frá mannlífinu í Garðabæ og segir frá ljósmyndaverkefninu Myndir og minningar: Garðabær lifnar við.

Ragna Sigurðardóttir rithöfundur les svo upp úr nýútkominni bók sinni Útreiðartúrinn sem er áhrifarík samtímasaga með djúpar rætur í fortíðinni. Þetta er saga af flóknu feðgasambandi og af vináttu sem ekki er öll þar sem hún er séð; ljúfsárt og heillandi ferðalag um gamlar og nýjar slóðir. Sögusvið Útreiðartúrsins er Álftanesið.

Kaffi og kruðerí í boði hússins.

Dagskrá:
17:30 - Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, syngur vel valin lög.

17:45 – Myndir og minningar: Garðabær lifnar við. Erla Bil Bjarnardóttir sýnir nokkrar vel valdar myndir og segir frá ljósmyndaverkefninu.

18:05 - Ragna Sigurðardóttir rithöfundur les upp úr nýútkominni bók sinni Útreiðartúrinn og ræðir við gesti um sögusviðið Álftanes og hvaða áhrif það hafi haft á bókina.

 Hérna má nálgast viðburðinn á Facebook.


Birthday party for the Garðabær library - Garðabær