Almar Guðmundsson takes over as mayor
Note that this news is older than 12 months.

At a meeting of the new Gardabaer municipal council yesterday, June 2, it was agreed to enter into negotiations with Almar Guðmundsson regarding the position of mayor of Gardabaer for the 2022-2026 term.
Á fundi nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar í gær, 2. júní var samþykkt að ganga til samninga við Almar Guðmundsson um starf bæjarstjóra í Garðabæ kjörtímabilið 2022-2026. Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins, ráðinn af bæjarstjórn. Hann hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarráðs og bæjarstjórnar og fer ásamt bæjarráði með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins. Bæjarstjóri er yfirmaður starfsmanna bæjarins og æðsti embættismaður.
Almar hefur setið í bæjarstjórn Garðabæjar frá árinu 2014, í bæjarráði frá 2018 og var formaður fjölskylduráðs og öldungaráðs á síðasta kjörtímabili. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá London Business School.
Undanfarið ár hefur Almar starfað hjá Reiknistofu lífeyrissjóða þar sem hann leiðir vinnu við breytingar á rekstri hugbúnaðarkerfis í eigu lífeyrissjóða. Hann starfaði hjá Krít fjármögnunarlausnum og síðar hjá Kviku 2017-2020 en á árunum 2009-2017 var hann framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og hjá Samtökum iðnaðarins. Þar áður vann hann ýmis stjórnunarstörf hjá Íslandsbanka og síðar Glitni. Almar er uppalinn Garðbæingur. Hann er kvæntur Guðrúnu Zoega og eiga þau fimm börn saman.
Almar tekur við sem bæjarstjóri af Gunnari Einarssyni sem starfaði sem bæjarstjóri í Garðabæ í 17 ár en hann kom til starfa hjá Garðabæ 25 ára gamall. Fyrst starfaði hann sem íþrótta- og tómstundafulltrúi og síðar sem forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs áður en hann var ráðinn bæjarstjóri árið 2005.