Skip to content
EN

Ásta Kristinsdóttir and Ægir Þór are the 2024 athletes of the year in Gardabaer

News
12.01.2025

Note that this news is older than 12 months.

The selection of the 2024 Athlete of the Year was announced at a ceremony at the Garðabær Sports Festival that took place today, Sunday, January 12, in Miðgarður .

Íþróttakona ársins 2024 í Garðabæ er Ásta Kristinsdóttir, fimleikakona Stjörnunnar. Íþróttakarl ársins 2024 í Garðabæ er Ægir Þór Steinarsson körfuboltamaður Stjörnunnar. Tilkynnt var um valið á íþróttafólki ársins við hátíðlega athöfn á íþróttahátíð Garðabæjar sem fór fram í dag, sunnudaginn 12 janúar, í Miðgarði.

Á hátíðinni voru einnig veittar viðurkenningar fyrir þjálfara ársins og lið ársins.

Þjálfarar ársins 2024 í Garðabæ eru Hinrik Pálsson hjá kraftlyftingadeild Stjörnunnar og Árný Oddbjörg Oddsdóttir hjá hestaíþróttadeild Spretts. Lið ársins 2024 í Garðabæ er Stjarnan meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum

Heiðursviðurkenningar hlutu svo þau Halldóra Jónsdóttir og Björgvin Júníusson .

Hér fyrir neðan má lesa umsagnir um íþróttafólk ársins 2024 í Garðabæ.

Umsögn um Ástu:

Ásta Kristinsdóttir hefur verið í lykilhlutverki í meistaraflokki í Stjörnunnar sem varð bikar- og Íslandsmeistari á árinu 2024. Hún keppir þar með hæstan erfiðleika í stökkum sem sést á íslenskum mótum í öllum umferðum sem hún framkvæmir. Ásta hlaut einnig Evrópumeistaratitil með landsliði kvenna í fullorðins flokki í október 2024. Var þetta annar Evrópumeistaratitillinn hennar í fullorðins flokki.

Auk þess var Ásta valin í lið besta fimleikafólks mótsins (All Star) fyrir frammistöðu sína á dýnu. Það þýðir að hún framkvæmdi umferðir með hæstan erfiðleikastuðul og bestu framkvæmdina á öllu mótinu. Ásta keppti með þrefalt heljarstökk á íslenska keppnistímabilinu sem er mjög sjaldgæf sjón hjá konum í fimleikum, ásamt því þá keppti hún fyrst kvenna á Íslandi með framseríu sem endar á tvöföldu heljarstökki með hálfum snúningi á Evrópumótinu. Ásta vann einstaklings sigur í FACEOFF fimleikakeppninni í fjórða sinn.

Umsögn um Ægi:

Ægir Þór er fyrirliði meistaraflokksliðs Stjörnunnar sem er í toppbaráttu Bónusdeildarinnar í körfubolta karla. Ægir er að spila sitt fimmta tímabil fyrir Stjörnuna, hann lék hér á árunum 2019-2021 og aftur frá 2023-2025 en í millitíðinni fór hann í atvinnumennsku til Spánar. Það sem af er tímabili er Ægir stoðsendingahæstur af öllum í deildinni,  í þriðja sæti yfir stolna bolta ásamt því að vera með tæp 17 stig í leik.  Af heildarframlagi leikmanna í deildinni er Ægir í sjötta sæti, langhæstur Íslendinga. Framlag Ægis er þó langt í frá að vera mælt eingöngu í tölfræði enda algjör drifkraftur í leikjum Stjörnunnar á báðum endum vallarins sem drífur bæði liðið og áhorfendur með sér.

Ægir Þór er landsliðsfyrirliði. Árangur landsliðsins undir forystu Ægis hefur verið frábær þar sem sigur á Ungverjum og frækinn útisigur á Ítalíu standa upp úr. Íslenska landsliðið er sem stendur í frábærri stöðu til að tryggja sig inn á lokakeppni Evrópumótsins næsta sumar. Ægir Þór er einnig þjálfari hjá Stjörnunni.