Applications are being advertised for the kindergarten development fund in Garðabær.

The Department of Education and Culture is advertising for applications for allocation from the Garðabær Preschool Development Fund.
Fræðslu- og menningarsvið auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi leikskóla í Garðabæ.
Einstaka leikskólakennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við leikskóla geta sótt um styrk í þróunarsjóð.
Til úthlutunar fyrir árið 2026 eru 9.000.000 kr.
Áhersluþættir Þróunarsjóðs leikskóla veturinn 2026-2027 eru:
- Leikskólastarf með yngstu börnunum
- Samvinna á milli skólastiga
- Lýðræði í leikskólastarfi
- Inngilding í leikskólastarfi
Við hvetjum alla áhugasama að senda inn umsókn þó verkefnið falli ekki undir áherslur
þróunarsjóðs þessa árs. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. apríl og verður þeim svarað fyrir 30. apríl.
Frekari upplýsingar veitir Hanna H Leifsdóttir leikskólafulltrúi. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Garðabæjar.