Skip to content
EN

Construction work in the locker rooms of Ásgarðslaug

News
05.08.2025

Due to necessary maintenance work, there will be changes to access to the Ásgarðslaug changing rooms. Updated

 Uppfært 5.8.2025

Framkvæmdir í Ásgarðslaug halda áfram þessa viku, en lagfæringar í karlaklefanum reyndust umfangsmeiri en áætlað var. Þegar þeim er lokið hefjast framkvæmdir í kvennaklefanum. Við þökkum skilninginn og vonum að búningsklefarnir verði enn betri þegar þeir hafa fengið smá uppfærslu.

  • Fyrst verður ráðist í lagfæringar á karlaklefa sundlaugarinnar og verður hann lokaður tímabundið. Á meðan geta karlmenn nýtt sér báða útiklefana sem standa gestum opnir.  
  • Að loknum framkvæmdum í karlaklefanum verður kvennaklefinn tekinn í gegn. Á meðan hann er lokaður geta konur einnig nýtt sér útiklefana sem verða opnir fyrir þær.


Við biðjum gesti um skilning og þolinmæði á meðan framkvæmdir standa yfir og minnum á að sundlaugin verður opin á framkvæmdatíma.