Climbing wall in Miðgarður
Note that this news is older than 12 months.

A climbing wall has been installed in Miðgarður , the new multi-purpose sports hall in Garðabær. The climbing wall was designed and built by the Bulgarian company Walltopia.
Klifurveggur hefur verið settur upp í Miðgarði, nýju fjölnota íþróttahúsi Garðabæjar. Klifurveggurinn er hannaður og byggður af fyrirtækinu Walltopia í Búlgaríu.
Í samvinnu við Klifurhúsið og áhugafólk um klifuríþróttina verða auglýst námskeið í klifri í Miðgarði í mismunandi erfiðleikastigum. Klifur í línu verður hluti af því. Með því opnast möguleiki á að hefja starfsemi fyrir nýja íþrótt í Garðabæ en námskeiðin verða auglýst þegar nær dregur.
Hægt verður að stunda klifur á sama tíma og knattspyrnu þar sem veggurinn er varinn með neti sem fangar boltana.
Fv. Mr. Hristov, Mr. Penchev og Mr. Stoyanov sem hafa unnið við að setja upp klifurvegginn í Miðgarði. Á myndina vantar Mr. Getov en hann er farinn heim.