The Race of Life 2022
Note that this news is older than 12 months.

The Life Run is a health and motivational project of the Icelandic Sports and Olympic Federation that appeals to all citizens. Its goal is to encourage citizens to follow the recommendations of the Director of Health's Office on physical activity, whether in their free time, at work, at school or when choosing a mode of transportation.
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Lífshlaupið 2022 var ræst þann 2. febrúar sl.
Hægt er að taka þátt í fjórum keppnisflokkum:
- Vinnustaðakeppni frá 2. - 22. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
- Framhaldsskólakeppni frá 2. - 15. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
- Grunnskólakeppni frá 2. - 15. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
- Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð sína hreyfingu allt árið
Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Íbúar Garðabæjar er hvattir til að taka þátt í Lífshlaupinu í ár! Allar upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu eru á vef Lífshlaupsins og á fésbókinni.