Skip to content
EN

Record turnout at the Children's Aid youth congress in Gardabaer and Hafnarfjörður

News
05.03.2026

There was a record turnout at the Barnaheilla youth congress in Garðabær and Hafnarfjörður. Participants were from the top grades of Garðaskóli in Garðabær, and Lækjarskóli, Setbergsskóli, Víðistaðaskóli, Öldutúnsskóli and Áslandsskóli in Hafnarfjörður, along with students from Fjölbrautskóli in Garðabær and Flensborg.

Rúmlega 80 ungmenni tóku þátt í öðru ungmennaþingi Barnaheilla um ofbeldi í nánum samböndum, en það var haldið í Skátaheimilinu í Hafnarfirði þann 4. mars. Þátttakendur voru úr efstu bekkjum Garðaskóla í Garðabæ, og Lækjarskóla, Setbergsskóla, Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla og Áslandsskóla í Hafnarfirði, ásamt nemendum úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar og Flensborg.

,,Ungmennin sem mættu úr skólunum í Hafnarfirði og Garðabæ voru hreint út sagt stórkostleg. Það var virkilega gagnlegt að heyra þeirra sýn á þetta mikilvæga málefni,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum.

„Mér fannst áberandi hversu virk þau voru í hópavinnunni. Það var líka gaman hversu mörg þeirra töluðu um að þau hefðu lært mikið af því að eiga þetta samtal og hversu skemmtilegt þeim fannst að taka þátt í þinginu.“

Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Starfsfólk sem vinnur að ungmennastarfi í skólunum tók að sér að stýra borðumræðum um viðfangsefnin.

Hóparnir færðu sig svo reglulega á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum m.a. með það að markmiði að læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingamyndir ofbeldis, hvaða úrræði og aðstoð er í boði og um mikilvægi fræðslu og frovarna. 

Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneyti til að halda ungmennaþing á sex stöðum víðs vegar um land. Niðurstöður af þingunum verða sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks á vordögum, og verða nýttar til að byggja upp betra forvarnastarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. apríl.

Nánar má lesa um verkefnið á vef Barnaheilla.