Let's remember the stimulus money

The incentive money for 2025 is ISK 60,000 per child, which can be used to pay off fees for organized sports, leisure and youth activities that are carried out regularly.
Hvatapeningar ársins 2025 eru 60.000 krónur á barn og þá má nýta til að greiða niður gjöld í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi sem stundað er reglulega.
Nú þegar áramótin nálgast er forráðafólk barna og unglinga í Garðabæ minnt á að nýta hvatapeninga ársins 2025 fyrir áramót. Ónýttir hvatapeningar geymast ekki milli ára.
Hvatapeningar ársins 2025 eru 60.000 krónur á barn. Öll börn á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Garðabæ, fá hvatapeninga. Hægt er að sækja um 15.000 kr. til viðbótar ef tekjur eru undir ákveðnu viðmiði, það er gert í gegnum þjónustugátt Garðabæjar.
Allar upplýsingar og reglur um hvatapeninga má nálgast hérna.
Hvatapeningar eru hugsaðir til að hvetja börn og unglinga á aldrinum 5 til 18 ára til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem leitt er af þar til hæfum leiðbeinendum.