Skip to content
EN

New kindergarten at Kauptún in Garðabær

News
06.05.2022

Note that this news is older than 12 months.

On Thursday, May 5, the municipal councilors in Garðabær, together with the chairman of the preschool committee, broke ground on a new preschool at Kauptún in Garðabær. Cheerful and cheerful children from the choir of the Hæðarból preschool in Garðabær arrived at the site and sang for those present at the ceremony.

Fimmtudaginn 5. maí tóku bæjarfulltrúar í Garðabæ ásamt formanni leikskólanefndar skóflustungu að nýjum leikskóla við Kauptún í Garðabæ. Hress og kát börn úr kór leikskólans Hæðarbóls í Garðabæ mættu á svæðið og sungu fyrir viðstadda á athöfninni. Urriðaból verður 6 deilda leikskóli í húseiningum sem verða reistar á staðnum og tekur til starfa haustið 2022. Garðabær leigir einingahúsin af Terra og er leigusamningurinn gerður til sjö ára með kauprétti.

Leikskólinn Urriðaból er undanfari nýs 6 deilda leikskóla fyrir allt að 120 börn við Holtsveg í Urriðaholti sem verður tekinn í notkun haustið 2023. Fyrr í vor auglýsti Garðabær eftir rekstraraðila að þessum nýja leikskóla og viðræður standa yfir við áhugasama aðila um rekstur leikskólans.

Skóflustunga tekin að nýjum leikskóla í Kauptúni

Urriðaból skóflustunga

Urriðaholt – hverfi í vexti

Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert er ráð fyrir allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Í uppbyggingu Urriðaholts hefur verið mikil áhersla á að byggðin sé umhverfisvæn og í góðum tengslum við náttúruna í kring.

Árið 2021 var haldin hönnunarsamkeppni um byggingu á nýjum leikskóla í Urriðaholti við Holtsveg og byggingarframkvæmdir við þann skóla hefjast á þessu ári. Vegna mikillar fjölgunar barna á leikskólaaldri í Urriðaholti var ákveðið að brúa bilið þar til leikskólinn rís við Holtsveg og hefja starf leikskólans í einingahúsum sem nú rísa við Kauptún fyrir neðan Urriðaholtið.

Á síðasta ári tók nýr leikskóli, Mánahvoll, til starfa við Vífilsstaði í Garðabæ til að mæta fjölgun leikskólabarna í bænum. Undanfarin ár hafa nánast öll börn í Garðabæ sem eru orðin 12 mánaða þegar skólaár hefst í september átt kost á leikskóladvöl.