Skip to content
EN

Agreement on the operation of a new preschool in Kauptún

News
07.06.2022

Note that this news is older than 12 months.

Garðabær and Skólar ehf have entered into an agreement to operate the Urriðaból preschool at Kauptún in Garðabær.

Garðabær og Skólar ehf hafa gert með sér samning um rekstur leikskólans Urriðabóls við Kauptún í Garðabæ. Samningurinn er til þriggja ára og í honum er kveðið á um að Skólar ehf. bera ábyrgð á framkvæmd faglegs leikskólastarfs samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum ásamt rekstrarþáttum tengdum leikskólastarfinu.

Leikskólinn Urriðaból tekur til starfa haustið 2022 og verður fyrst um sinn staðsettur við Kauptún í húseiningum sem er verið að reisa á staðnum. Urriðaból í Kauptúni verður 6 deilda leikskóli fyrir rúmlega 90 börn og er undanfari nýs leikskóla sem verður byggður við Holtsveg í Urriðaholti. Garðabær reisir húsnæði leikskólans við Kauptún og skóflustunga að nýja leikskólanum við Kauptún var tekin fimmtudaginn 5. maí sl. Stærð lóðarinnar í Kauptúni er um 5.000 m2 með bílastæðum, heildarstærð húsnæðis er um 931,1 m2.

Skólar ehf leggja áherslu á heilsueflandi skólastarf

Skólar ehf er liðlega 20 ára fyrirtæki sem er í dag að reka fjóra heilsuleikskóla, Heilsuleikskólann Krók í Grindavík, Heilsuleikskólann Kór í Kópavogi, Heilsuleikskólann Skógarás í Reykjanesbæ og Heilsu-ungbarnaskólann Ársól í Reykjavík. Allir leikskólar Skóla ehf starfa samkvæmt Heilsustefnu, sem kennd er við Unni Stefánsdóttur, og hafa auk þess tekið virkan þátt í þróun verkefnisins Heilsueflandi leikskóli í samvinnu við Embætti landlæknis. Skólar eru stærsti einstaki rekstraraðilinn innan Samtaka heilsuleikskóla og jafnframt einn af stofnaðilum Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK). Skólar ehf stefna að því að verða leiðandi í þekkingu og aðferðarfræði heilsueflandi leikskólastarfs með heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins að leiðarljósi.

Uppbygging í Urriðaholti

Árið 2021 var haldin hönnunarsamkeppni um byggingu á nýjum leikskóla í Urriðaholti við Holtsveg og byggingarframkvæmdir við þann skóla hefjast á þessu ári. Vegna mikillar fjölgunar barna á leikskólaaldri í Urriðaholti var ákveðið að brúa bilið þar til leikskólinn rís við Holtsveg og hefja starf leikskólans í einingahúsum sem nú rísa við Kauptún fyrir neðan Urriðaholtið.

Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert er ráð fyrir allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Í uppbyggingu Urriðaholts hefur verið mikil áhersla á að byggðin sé umhverfisvæn og í góðum tengslum við náttúruna í kring.