Skip to content
EN

Do you want to strengthen your skills to handle the parenting role?

News
21.01.2026

The Education and Leisure Department and the Welfare Department of Garðabær offer courses for parents who want to increase their skills in handling their parenting role.

Uppfært 26. janúar: Búið er að fylla öll pláss á námskeiðið. Nýtt námskeið verður haldið í febrúar, nánari upplýsingar verða auglýstar síðar.

Á námskeiðinu munu reynslumiklir uppeldisráðgjafar gefa gagnleg ráð og kenna aðferðir til að draga úr vægum hegðunarvanda, auka samstarfsvilja og ýta undir færni barnsins til að takast á við daglegt líf.
Boðið verður upp á notalega kvöldstund þar sem foreldrum gefst tækifæri til þess að auka færni sína og læra nýjar uppeldisaðferðir.

Námskeiðið er um tvær klukkustundir og er haldið mánudaginn 26. janúar klukkan 19:30, í Sveinatungu á Garðatorgi.

Skráning fer fram hérna. 

Þátttökugjald er 2.500 kr.  fyrir fjölskyldu, greiðsluseðill verður sendur út við skráningu.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Garðabæ í síma 525-8500.

Viðburðurinn á Facebook.